Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Aukafjárveiting til kennslu, gæslu og forfalla í grunnskólum

15.02.2011

Upplestur á frétt 

Allt að 200 milljóna króna aukafjárveitingu verður varið til skólastarfs á haustönn 2011. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar mun leggja fram tillögu þessa efnis í borgarráði næstkomandi fimmtudag. 
 
Aukið fjárframlag til Menntasviðs gerir borginni kleift að standa vörð um metnaðarfulla list- og verkgreinakennslu. Meira fjármagni verður varið til forfallakennslu og gæslu nemenda en gert var á síðasta ári.

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 var sá fyrirvari gerður á fjárhagsáætlun Menntasviðs að horft yrði til viðræðna sveitarfélaganna og mennta- og menningarmálaráðherra vegna tímabundinna breytinga á grunnskólalögum til að gera sveitarfélögum betur kleift að standa vörð um gæði kennslunnar. Ekki er útlit fyrir að sú niðurstaða náist. Strax í byrjun árs voru rekstraráætlanir skóla grandskoðaðar og í ljós kom að uppsafnaður vandi vegna hagræðingar síðastliðinna ára, sérstaklega í gæslu og forföllum, var ekki ásættanlegur. 

Ljóst er að áfram verður leitað allra leiða til að hagræða með endurskipulagningu í skóla- og frístundastarfi barna og skilar starfshópur af sér skýrslu í næstu viku þar sem tillögur um sameiningar leikskóla, grunnskóla og samþætting skóla- og frístundastarfs munu líta dagsins ljós. Betri nýting húsnæðis og endurskipulagning stjórnunar er lykilatriði til að koma til móts við þau 400 börn sem væntanleg eru í leikskóla borgarinnar, umfram fjölda þess árgangs sem fara í 1. bekk í haust. Í því skyni voru framlög til Leikskólasviðs hækkuð um 300 milljónir króna á milli ára við samþykkt fjárhagsáætlunar í desember 2010.