200 milljóna króna aukafjárveiting - 60 stöðugildi kennara tryggð
17.02.2011
Upplestur á frétt 
Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík, segir að það sé alfarið rangt að hagræða þurfi í rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar um 800 milljónir. Það sé mikilvægt í umræðunni að réttar tölur séu settar fram í tengslum við hagræðinguna. „Sannleikurinn er sá að sú hagræðing og sá niðurskurður sem lendir á grunnskólum Reykjavíkurborgar í fjárhagsáætlun 2011 eru 290 milljónir. Nú er búið að bæta við 200 milljónum af þeim verður 137 milljónum varið í að draga tilbaka fyrirhugaða lækkun á kennslumagni. Sú ráðstöfnu hefur það í för með sér að hægt verður að tryggja um 60 stöðugildi kennara í byrjun skólaárs næsta haust," segir Ragnar. Eftir standi 92 milljónir sem skólastjórar eru að vinna með í hagræðingu. „Þar fyrir utan eru síðan 114 milljóna króna hagræðing sem er þáttur Menntasviðs Reykjavíkurborgar í endurskipulagningu leik-, grunnskóla, frístundaheimila og skólamötuneyta. Þetta eru tölurnar og þarna er stór munur á málflutningi," segir Ragnar.
Sjá viðtal við Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóra, á visi.is hér.