Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Hagræðing í grunnskólastarfi í tölum

18.02.2011

Upplestur á frétt 

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 var gert var ráð fyrir 4,2% heildarhagræðingu á Menntasviði, þar undir er allur rekstur sviðsins, grunnskólar, tónlistarnám, Námsflokkar Reykjavíkur og kostnaður við stjórnsýslu. Með aukafjárveitingu til grunnskólanna (200 m.kr.) verður hún um 3%.

Samkvæmt fjárhagsáætlun átti heildarhagræðing sviðsins fram til áramóta að nema 750 milljónum króna, en verður nú 200 milljónum króna lægri.

Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir að hagræðing í kennslu væri um 137 m.kr. næsta haust. Hagræðing á gæslu í frímínútum og næðisstund var áætluð um 21 m.kr. Þetta var dregið til baka með 200 m.kr. viðbótarfjármagni, auk þess sem bætt var við 42 m. kr. vegna forfallakennslu. Við það voru tryggðar 60 kennarastöður í grunnskólum Reykjavíkur. Eftir stendur sparnaður vegna endurskipulagningar almennra starfa í grunnskólunum að fjárhæð 87 m.kr. sem skólastjórar vinna nú að.

Auk þess er gert ráð fyrir endurskipulagningu á rekstri leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og rekstri mötuneyta.
Þáttur Menntasviðs í þeirri endurskipulagningu er 114 milljónir kr. Endurskipulagning í skólastarfi tekur ekki til allra grunnskóla.

Aðgerðir grunnskóla til að mæta hagræðingu ársins 2010 og komnar eru í framkvæmd leiða til afleiddrar hagræðingar á þessu ári sem nema 47 m. kr. Þær tóku til yfirstjórnar og almennra starfsmanna.

Menntasvið er að leita leiða til að skila vannýttu eða ónýttu húsnæði til Eignasjóðs Reykjavíkurborgar og lækka þar með innri leigu.
Það á að skila 160 m. kr. í sparnað. Sú aðgerð mun ekki hafa áhrif á skólastarf.

Hagræðingarkrafan í grunnskólastarfi fer úr 3,9% í 2,5%.