Reykvískir kennarar fjölmenna á námskeið
09.08.2011
Upplestur á frétt 
Símenntunarnámskeið fyrir grunnskólakennara í borginni standa nú yfir og fara flest þeirra fram í Hagaskóla. Rúmlega tuttugu námskeið eru í boði. Námskeiðin hafa verið vel sótt og eru þau fjölmennustu um stærðfræðikennslu og námsáætlanir og námsmat. Margir voru mættir í Hagaskóla þriðjudaginn 9. ágúst enda þótt sólin skini glatt, en þar stóðu þá yfir ein fimm námskeið.
Símenntunarnámskeiðunum lýkur þann 11. ágúst, en flest eru þau kennurum og skólum að kostnaðarlausu.
Sjá meira um námskeiðin á heimasíðu Menntasviðs.