Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Grunnskólarnir settir 22. ágúst

10.08.2011

Upplestur á frétt 

Skólastarf 2011-2012 er að hefjast í 37 almennum grunnskólum í Reykjavík, 2 sérskólum og 5 einkaskólum. Um 14.000 nemendur á grunnskólaaldri setjast á skólabekk, þar af eru um 1.400 börn sem hefja nám í 1. bekk.

Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er nú í fullum gangi og verður skólasetning mánudaginn 22. ágúst í öllum almennum grunnskólum borgarinnar en verður auglýst nánar þegar nær dregur. Á heimasíðum skólanna má finna frekari upplýsingar um skólabyrjun og mætingar árganga og innkaupalista.