Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skólasetning í grunnskólum borgarinnar

22.08.2011

Upplestur á frétt 

Skólasetning er í 37 almennum grunnskólum borgarinnar í dag, tveimur sérskólum og 5 einkaskólum. Nemendur mæta í skólann sinn fram eftir degi og eru foreldrar hvattir til að koma með þeim í skólann. Um 1.400 börn eru að setjast í fyrsta sinn á skólabekk, en alls verða nemendur grunnskólanna um 14.000 í vetur.

Nýr sérskóli, Klettaskóli var settur við hátíðlega athöfn í Perlunni kl. 10.00. 94 nemendur með sérþarfir og þroskahömlun munu stunda nám í skólanum í vetur og ríkti mikil eftirvænting meðal þeirra við skólasetninguna. Tíu nýnemar koma í skólann þetta haustið og níu nemendur úr öðrum grunnskólum borgarinnar. Við skólasetninguna var m.a. fluttur nýr skólasöngur og Ásdísi sem gaf skólanum nafn var veittur þakklætisvottur fyrir nafngiftina. Margir góðir gestir voru viðstaddir skólasetninguna í Klettaskóla í morgun, s.s. Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs og aðrir fulltrúar í ráðinu, og óskuðu þeir nemendum og starfsfólki velfarnaðar í starfi.

Klettaskóli varð til við sameiningu Safamýrarskóla og Öskjuhliðarskóla og verður til húsa í Suðurhlíð 9, þar sem Öskjuhlíðarskóli starfaði áður.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á skólahúsinu til að mæta þörfum fjölfatlaðra barna og hefur aðgengi verið stórbætt. Skólastjóri er Erla Gunnarsdóttir.