Aldrei betri árangur í lestri í 2. bekk
24.08.2011
Upplestur á frétt 
Á liðnu vori sýndi reglubundin lesskimun meðal grunnskólabarna í 2. bekk að 71% þeirra gætu lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið. Þetta er besti árangur frá upphafi lesskimana sem hófust í grunnskólum borgarinnar árið 2002. Af þeim 1.241 nemanda í 2. bekk sem tók lesskimunarprófið taldist 875 geta lesið sér til gagns. 366 nemendur í 36 grunnskólum náðu ekki þessum árangri eða 29% og þarf sá hópur stuðning í lestri með einstaklingsáætlun eða einstaklingsnámskrá.
Í sumar skoðaði Menntasvið hvort fylgni væri milli árangurs í lesskimun í 2. bekk og árangurs á samræmdu könnunarprófi í íslensku í 4. bekk. Þegar meðaltal úr lesskimun í öllum skólum borgarinnar á átta ára tímabili var borið saman við meðaltal úr samræmdum könnunarprófum í íslensku í 4. bekk, kom í ljós jákvæð fylgni. Árangur í lesskimun gefur því vísbendingu um árangur á samræmdu könnunarprófi í íslensku.
Í stefnu- og starfsáætlun Menntasviðs Reykjavíkur er hlutfall nemenda sem geta lesið sér til gagns við lok 2. bekkjar einn af mælikvörðum um hvernig tekist hefur að framfylgja stefnumiðum um lestrarfærni, lesskilning og læsi.
Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs segir þennan góða árangur í lestri mikið fagnaðarefni. "Hann má m.a. rekja til átaks sem gert hefur verið meðal yngstu grunnskólanemanna í ýmsum verkefnum tengdum byrjendalæsi og miðar að því að bæta lestrarfærni. Í tengslum við þetta átak munu allir skólar borgarinnar setja sér áætlun til þriggja ára um að efla málþroska og læsi. Þetta er líka sérlega ánægjulegt í ljósi þess að nýlega hlotnaðist Reykjavíkurborg titillinn Bókmenntaborg UNESCO sem er bæði viðurkenning og hvatning fyrir reykvíska skóla."
Sjá niðurstöður lesskimunar 2011