Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Stýrihópar um sameiningu skóla að störfum

31.08.2011

Upplestur á frétt 

Fimm stýrihópar sem vinna eiga að sameiningu grunnskóla í borginni og breyttu skólastarfi eru að taka til starfa. Hver hópur setur sér leiðarljós og mun vinna náið með skólasamfélaginu, nemendum, foreldrum og starfsfólki. Öll vinna stýrihópanna verður aðgengileg á vefnum www.reykjavik.is/skoliogfristund þar sem er að finna erindisbréf, upplýsingapósta, fundargerðir og annað er tengist starfi þeirra.

Stýrihóparnir eiga að vinna að sameiningu Borgaskóla og Engjaskóla, Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla og Korpuskóla og Víkurskóla. Þá er að störfum stýrihópur um framtíðarskipan skólahalds í Vesturbæ og fimmti hópurinn, sem vinna á að heildstæðum safnskóla á unglingastigi í suðurhluta Grafarvogs, mun taka til starfa á næstu vikum.

Fjórir starfsmenn Menntasviðs Reykjavíkur sitja í hópunum, auk skólastjóra, fulltrúa starfsmanna, foreldra, þjónustumiðstöðva og frístundastarfs. Hóparnir senda reglulega frá sér upplýsingapósta til foreldra þar sem gerð er grein fyrir viðfangsefnum funda og framvindu starfsins. Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri á Menntasviði, leiðir starf hópanna. 

Sjá meira um stýrihópana.