Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Nemandi í Foldaskóla vinnur til umhverfisverðlauna

05.09.2011

Upplestur á frétt 

Magnús Valur Willemsson Verheul í 10. bekk í Foldaskóla hefur undanfarnar tvær vikur dvalið í Rússlandi á vegum UMFÍ. Þar hefur hann setið alþjóðlega ráðstefnu ungmenna á norðurslóðum og rætt m.a. um umhverfismál, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra. 

Þátttakendur, sem komu m.a. frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Grænlandi og ellefu fylkjum Rússlands, ræddu sína framtíðarsýn og leystu þrautir og ýmis verkefni. Magnús Valur vann til 2. verðlauna í alþjóðlegri umhverfismálakeppni með kynningu sinni á Grænfánaverkefni Foldaskóla.