Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Rimaskóli vann Norðurlandamót barnaskólasveita 2011

12.09.2011

Upplestur á frétt 

Nemendur Rimaskóla unnu annað árið í röð gríðarsterkt Norðurlandamót barnaskólaskáksveita. Mótið fór að þessu sinni fram í bænum Hadsten í Danmörku, dagana 9. - 11. september. Rimaskóli vann Íslandsmót barnaskólasveita með yfirburðum í byrjun aprílmánaðar og sigurinn veitti þeim rétt á að keppa á Norðurlandamótinu með bestu skákskólum hvaðanæva að af Norðurlöndum. 
Skáksveit Rimaskóla hlaut 14 vinninga af 20 á mótinu, jafnmarga og sænski skólinn, en lokaviðureign þeirra tryggði Rimaskóla sigur.

Sveit Rimaskóla var nokkuð breytt frá Norðurlandamótinu í fyrra og yngri krakkar teknir við keflinu. Þetta er í tíunda sinn frá því árið 2003 sem skólinn tekur þátt í Norðurlandamóti skólaskáksveita og fjórði Norðurlandatitillinn. Skólinn hefur ávallt fengið myndarlegan ferðastyrk frá Menntaráði Reykjavíkurborgar til þátttöku í mótunum. Norðurlandameistarar Rimaskóla 2011eru þau Oliver Aron Jóhannesson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Nansý Davíðsdóttir, Jóhann Arnar Finnsson og Svandís Rós Ríkharðsdóttir.

Hjörvar Steinn Grétarsson hinn efnilegi landsliðsmaður í skák og fyrrverandi nemandi í Rimaskóla var liðstjóri og þjálfari krakkanna á mótinu og fararstjóri að venju var Helgi Árnason skólastjóri.