Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Hjólarí og heilsuefling í skólum

13.09.2011

Upplestur á frétt 

Ártúnsskóli og Fossvogsskóli standa fyrir átaki í september og október sem felst í því að hvetja nemendur til að ganga eða hjóla í skólann. Markmiðið er að fá nemendur til að hreyfa sig meira og ekki síst að draga úr umferð, mengun og hraðakstri nálægt skólunum. Foreldrar taka þátt í því að velja heppilegustu leiðina í skólann og að sjálfsögðu eru allir sem koma á hjóli eða hlaupahjóli með öryggishjálm. Hjólavika verður í Fossvogsskóla frá 12.-16. september og þá er ekki einungis hjólað í og úr skóla heldur einnig í frímínútum.

Í Fossvogsskóla og Ártúnsskóla hefur lengi verið lögð áhersla á vistvænan ferðamáta og hefur t.d. verið komið upp aðstöðu á skólalóðum þeirra til að geyma hlaupahjól. Þá eru skólarnir þátttakendur í verkefninu Heilsueflandi skóli, en eitt markmiða þess er að stuðla að heilsusamlegum og vistvænum ferðamáta. Báðir eru þessir grunnskólar á grænni grein og státa af alþjóðlegu umhverfisviðurkenningunni grænfánanum.

Í næstu viku verður í annað sinn gerð könnun á ferðamáta og leiðarvali nemenda til og frá Fossvogsskóla. Skoðað verður hvort fleiri nemendur koma nú gangandi og hjólandi í skólann, en samkvæmt síðustu könnun voru þeir yfir 90 af hundraði.

Í vetur verður svokallað hjólarí í Fossvogsskóla á hverjum miðvikudegi en þá fá nemendum í 6. og 7. bekk fræðslu um hvernig á að laga hjól, s.s. smyrja, gera við sprungin dekk, bilaða gíra og lausar keðjur.