Pollapönk í Breiðholti
24.11.2011
Upplestur á frétt 
Leikskólabörn í Breiðholti skemmtu sér vel á tónleikum í morgun þegar Haraldur F. Gíslason formaður í Félagi leikskólakennara kom ásamt félögum sínum í Pollapönki og spilaði fyrir þau. Tónleikarnir voru haldnir í Austurbergi í Efra Breiðholti og það voru Íbúasamtökin Betra Breiðholt sem stóðu fyrir þeim í samstarfi við leikskólastjóra í hverfinu.
Þessa vikuna standa yfir hinir árlegu Breiðholtsdagar og voru Pollapönk tónleikarnir haldnir í tilefni af þeim. Allt að 700 börn nutu tónlistarinnar á tvennum tónleikum í dag.