Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sérkennsla

Sérkennsla

Í öllum grunnskólum Reykjavíkur stendur börnum til boða aðstoð vegna sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar. Allt að fimmtungur nemenda fær sérkennslu af einu eða öðru tagi á hverju skólaári, flestir vegna lestrar-og skriftarörðugleika. Á undanförnum árum hafa grunnskólar Reykjavíkur fengið sérstaka fjárúthlutun vegna barna með fatlanir og miklar sérþarfir í námi, m.a. vegna geðraskana og annarra alvarlegra hegðunarvandamála. Skólastjóri sér um að fylla út umsókn um fjárúthlutun ásamt greiningargögnum og senda til Skóla- og frístundasviðs. Úthlutað er í júní og endurskoðun úthlutunar fer fram í október.

Verkefnastjóri sérkennslu er Hrund Logadóttir og veitir hún nánari upplýsingar um sérúrræði fyrir nemendur með félagslega örðugleika/ og eða fötlun.