Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skólamötuneyti

Skólamötuneyti

Í leik- og grunnskólum er lögð áhersla á hreyfingu og hollan mat sem uppfyllir kröfur Lýðheilsustofnunar. Leitast er við að skapa gæðastundir í kringum máltíðir og góða matarmenningu með samveru og samkennd.

Í  leikskólum borgarinnar fá börnin daglega morgunverð, hádegisverð og nónhressingu.
Leikskólaráðgjafi og verkefnisstjóri í lýðheilsu, Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir, er í samstarfi við þá sem veita ráðgjöf um starfsemi í mötuneytum leikskóla.

pdfmynd Matur í leikskólum
pdfmynd Leiðarvísir um veitingar fyrir afmælis- og kveðjuveislur í leikskólum.  

Skólamötuneyti

Flestir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur nýta sér skólamötuneytin þar sem boðið er upp á næringarríkan og hollan hádegisverð á degi hverjum.   

Sjá reglur um umsókn, innritun, gjaldtöku og innheimtu skólamáltíða. 

Gjald fyrir skólamáltíðir í Reykjavík er 310 kr. á máltíð eða 6.200 kr. á mánuði. Foreldrar greiða einungis skólamáltíð fyrir tvö börn, önnur njóta 100% afsláttar. Skráning fyrir mataráskrift í grunnskólum borgarinnar fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.

pdfmynd Upplýsingar um mötuneyti í grunnskólum Reykjavíkur.   
pdfmynd Gæðahandbók skólamötuneyta.
pdfmynd Quality Manual for School Canteens.

Áhugaverðar krækjur.