Um Skóla- og frístundasvið
Nýtt Skóla- og frístundasvið tók til starfa 12. september 2011. Með stofnun þess er stefnt að því að veita börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Sviðið annast rekstur 62 leikskóla, 39 grunnskóla, frístundamiðstöðva, félagsmiðstöðva, frístundaheimila ásamt umsjón með daggæslu í heimahúsum. Jafnframt heyrir rekstur Námsflokka Reykjavíkur skólasafnamiðstöðvar og fjögurra skólahljómsveita undir sviðið.
Skóla- og frístundasvið hefur einnig umsjón og eftirlit með starfsemi 19 sjálfstætt starfandi leikskóla og 6 grunnskóla, tónlistarskóla og myndlistarskóla, auk annarrar sambærilegrar starfsemi sem styrkt er af Reykjavíkurborg. Þá gerir sviðið þjónustusamninga við þjónustumiðstöðvar í hverfum í tengslum við sérfræðiþjónustu til leik- og grunnskólabarna og frístundaráðgjöf.
Ragnar Þorsteinsson stýrir Skóla- og frístundasviði.
Tillaga og greinargerð um stofnun Skóla- og frístundasviðs