Innritun
Innritun í grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 2010-2011
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir mánudaginn 23. ágúst 2010. Tímasetningar mætinga árganga í hverjum skóla er hægt að sjá hér. Einnig er hægt að finna upplýsingar um skólabyrjun og innkaupalista á heimasíðum skólanna.
Innritun barna sem fædd eru árið 2004 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2010 er lokið, en þó verður áfram hægt að innrita í gegnum Rafræna Reykjavík. Sama á við um innritun nemenda sem þurfa að flytjast á milli skóla.
Sjá skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011
Senda má fyrirspurnir um innritun í tölvupósti til Hafdísar Gísladóttur.