Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Foreldrasamstarf

Foreldrasamstarf

Niðurstöður rannsókna sýna að stuðningur foreldra og þátttaka þeirra í skólastarfi skiptir miklu máli fyrir námsárangur barna og líðan. Velferð nemenda verður því best tryggð í góðu samstarfi foreldra og skóla.

Markmiðið með foreldrasamstarfi  er að tryggja hagsmuni nemenda með upplýsingamiðlun og samráði foreldra og skóla. Það veitir nemandanum aukið öryggi að finna gagnkvæmt traust og virðingu milli hinna fullorðu og samræmi í gildum og væntingum heima fyrir og í skólanum.

Foreldrar geta leitað stuðnings hjá þjónustumiðstöðvum við lausn mála sem tengjast skólastarfi, en þar starfa m.a. kennsluráðgjafar og sálfræðingar. Í hverju sveitafélagi skal í umboði sveitarstjórnar vera skólanefnd sem fer með málefni  grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða.

Ráðgjafi foreldra og skóla
Á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur starfar ráðgjafi foreldra og skóla, Guðbjörg Jónsdóttir, sem getur veitt faglega ráðgjöf í málefnu sem upp geta komið í grunnskólum borgarinnar. Hann vinnur að viðeigandi úrræðum fyrir nemendur með fjölþættan vanda í samstarfi við foreldra og stofnanir Reykjavíkurborgar. Sími 411 11 11.

pdfmynd Verklagsreglur - Þjónusta við grunnskólanema með fjölþættan vanda (pdf).

Skólaráð
Í lögum um grunnskóla, nr.91/2008 , 8. gr. segir að við grunnskóla skuli starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.

Foreldrafélög
Í lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, 9. gr. er kveðið á um að við grunnskóla skuli starfa foreldrafélag. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja við skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.

Samtök Foreldra
Foreldrar hafa stofnað foreldrafélög í öllum grunnskólum borgarinnar. Foreldrafélögin og foreldraráð í borginni hafa einnig myndað samtökin SAMFOK og til eru heildarsamtök foreldra í landinu Heimili og skóli.

Bæklingurinn Stoðir í skólastarfi fjallar um foreldrastarf í grunnskólum.