Sérdeildir í skólum
Í grunnskólum Reykjavíkur starfa nokkrar sérdeildir með sérhæft hlutverk og þjóna börnum úr öllum hverfum borgarinnar. Þrjár sérdeildir eru fyrir nemendur með einhverfu; í Fellaskóla, Hamraskóla og Langholtsskóla. Þær eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára í 1. til 10. bekk og eru 6-9 nemendur í hverri deild. Nánari upplýsingar um starfsemi þessarra sérdeilda er á heimsíðum skólanna.
Sérdeild fyrir einhverfa er í Hamraskóla
Sérdeild fyrir einhverfa er í Langholtsskóla
Sérdeild fyrir einhverfa er í Fellaskóla
Sérdeild fyrir einhverfa er í Vogaskóla
Málörvunardeild er í Hlíðaskóla og þar er starfrækt táknmálssvið fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta nemendur.
Umsóknir um skólavist í sérhæfðri sérdeild fyrir nemendur með einhverfu
Foreldrar sækja um skólavist í deildunum á sérstöku eyðublaði sem finna má hér á síðunni en einnig má nálgast það hjá skóla- og frístundasviði og á skrifstofum skólanna. Með umsókn þurfa að fylgja greiningargögn og skýrslur leik- eða grunnskóla vegna nemandans eftir því sem við á. Umsóknir skilist til skóla- og frístundasviðs eða til skólanna fyrir 15. mars ár hvert..
Inntökuteymi, sem í sitja skólastjórar og deildarstjórar deildanna þriggja ásamt fulltrúa Skóla- og frístundasviðs, fjallar um umsóknir um skólavist. Ákvörðun um inntöku skal lokið fyrir 15. apríl og er öllum umsóknum svarað skriflega.
Nánari upplýsingar veitir Hrund Logadóttir, verkefnisstjóri sérkennslu.