Skóla- og frístundaráð
Skóla- og frístundaráð starfar í umboði borgarráðs og mótar stefnu í menntamálum barna í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar og frístundastarfi barna og ungmenna. Einnig mótar skóla- og frístundaráð stefnu um tónlistarfræðslu barna og ungmenna og félagslega menntastefnu og fylgist með gæðum skólastarfs og annars starfs á verksviði þess. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður.
Sjá samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð.
Ráðið fundar að jafnaði annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar, kl. 12.30. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið getur haldið opna fundi fyrir almenning.
Skóla- og frístundaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann. Borgarstjórn kaus í fyrsta sinn í skóla- og frístundaráð 20. sept. 2011.
Aðalmenn:
Oddný Sturludóttir, formaður
Hilmar Sigurðsson
Óttarr Ólafur Proppé, varaformaður
Eva Einarsdóttir
Kjartan Magnússon
Marta Guðjónsdóttir
Líf Magneudóttir
Til vara:
Erna Ástþórsdóttir
Pétur Magnússon
Ingi Bogi Bogason
Kristín Erna Arnardóttir
Geir Sveinsson
Rúna Malmquist
Sigríður Pétursdóttir
Áheyrnarfulltrúar:
Fulltrúi skólastjóra: S. Ingibjörg Jósefsdóttir
Fulltrúi leikskólastjóra: Þórunn Gyða Björnsdóttir
Fulltrúi kennara: Þorgerður Diðriksdóttir.
Fulltrúi starfsmanna í leikskólum: Anna Helga Sigfúsdóttir
Fulltrúi stjórnenda frístundamiðstöðva: Helgi Eiríksson.
Fulltrúi samtakanna Barnanna okkar: Rósa Steingrímsdóttir
Fulltrúi foreldra, Samfoks: Bryndís Jónsdóttir:
Varamenn áheyrnarfulltrúa:
Varamaður fulltr. skólastjóra: Börkur Vígþórsson.
Varamaður fulltr. leikskólastjóra: Sigrún Sigurðardóttir.
Varamaður fulltr. kennara: Guðjón Ragnar Jónasson
Varamaður fulltrúa leikskólastarfsfólks: Stella Marteinsdóttir.
Varamaður fulltr. stjórnenda frístundamiðstöðva: Jóhannes Guðlaugsson
Varaáheyrnarfulltrúi Barnanna okkar: Gauti Marteinsson
Varaáheyrnarfulltrúi Samfoks: Guðrún Valdimarsdóttir
Sjá fundargerðir