Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur veitir árlega styrki til þróunarstarfs í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi. Auk þess veitir ráðið almenna styrki til ýmissa verkefna sem stuðla að öflugra skólastarfi. Umsóknarfrestur um almenna styrki er til 1. október ár hvert. Umsóknarfrestur um þróunarstyrki menntaráðs er auglýstur ár hvert. Við úthlutun þróunar- og samstarfsstyrkja leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs 2012 verður haft að leiðarljósi að styrkja verkefni sem miða að auknu samstarfi og samþættingu verkefna þvert á skólastig, svo og læsi í víðum skilningi. Frekari upplýsingar um reglur og umsóknir veitir Auður Árný Stefánsdóttir skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu á Menntasviði.
Sjá yfirlit yfir styrkþega úr þróunarsjóði 2011
Þróunarsjóður menntaráðs og styrkir til tónlistarskóla Reglur um styrkveitingar úr þróunarsjóði menntaráðs Umsóknareyðublað vegna styrks úr þróunarsjóði menntaráðsAlmennir styrkir menntaráðs Reglur um almenna styrki menntaráðs UmsóknareyðublaðKennarar Umsókn um styrk vegna framhaldsnáms kennara við grunnskóla