Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Viðbrögð við einelti

Einelti er ekki liðið í grunnskólum Reykjavíkur
Í stefnu og starfsáætlun árið 2010 segir að leita skuli allra leiða til að börnum líði vel í skólanum og að unnið sé markvisst að því í samræmi við forvarnarstefnu borgarinnar að byggja upp jákvæða sjálfsmynd og þjálfa félagsfærni og samskipti barnanna. Tekið er fram að einelti og ofbeldi sé ekki liðið.

Hvað er einelti og hvernig má fyrirbyggja það?

  • Einelti felur í sér að barn/einstaklingur er tekinn fyrir af einum eða hópi með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum, sögusögnum, andlegri kúgun, hótunum af ýmsu tagi, félagslegri höfnun eða markvissri útskúfun.
  • Ef barn er lagt í einelti líður ekki langur tími áður en því fer að líða illa, verður óttaslegið, öryggislaust, einmana og á varðbergi gagnvart félögum. Sjálfstraustið hverfur, barnið dregur sig í hlé og verður jafnvel veikt án sýnilegra sjúkdóma. Langvarandi einelti veldur streitu sem leitt getur til alvarlegra vandamála eins og óæskilegrar hegðunar, lystarleysis og þunglyndis.
  • Einelti getur einnig birst í samskipum í netmiðlum. Það er hlutverk fullorðna fólksins að sjá til þess að börn umgangist netið af ábyrgð.
  • Stefnumótun í eineltismálum hefur að markmiði að tryggja öruggt skólaumhverfi þar sem nemendum líður vel. Nemendum líður vel þar sem samskiptin helgast af virðingu, samábyrgð, umhyggju og ábyrgri hegðun.
  • Einelti er ofbeldi sem getur haft varanleg áhrif á sálarlíf fórnarlambsins.
  • Allir skólar í borginni hafa eineltisáætlun sem þeir starfa eftir til að fyrirbyggja einelti og uppræta það þegar grunur er um slíkt.


Hvert geta foreldrar snúið sér leiki grunur á að barn þeirra verði fyrir einelti í skóla?
Foreldrar þurfa alltaf að taka alvarlega grun um að barn þeirra verði fyrir einelti í skólanum eða ef upplýsingar berast frá skólanum um að barn þeirra sæti einelti.

Nauðsynlegt er að ræða við barnið, hlusta vel og sýna því umhyggju og skilning. Einnig þurfa foreldrar að ræða við umsjónarkennara. Hann ætti aldrei að gera lítið út áhyggjum foreldra heldur afla nauðsynlegra gagna til að varpa ljósi á staðreyndir. Sé eineltið staðfest þarf að gera ítarlega áætlun um hvernig skóli og foreldrar stöðvi eineltið í sameiningu. Eins og fram kemur í bæklingi Olweusar um ráðleggingar til foreldra er augljóst að skólinn á að hafa frumkvæði að því að skipuleggja hvernig vinna skuli gegn einelti og hann á að samhæfa starfið. Yfirleitt er talið best að foreldrar og umsjónarkennari fái leyfi þolanda til að taka málið upp. Hins vegar eru það alltaf þeir fullorðnu sem eru ábyrgir fyrir því að vernda barnið. 

Ráðgjafi foreldra og skóla
Fram kemur í ferli vegna brota á skólareglum, ástundarvanda, ofbeldi og lögbrotum að gert er ráð fyrir að ferill máls hefjist hjá umsjónarkennara, sjá verklagsreglur þar að lútandi.
Takist ekki að leysa málið innan skólans geta skólastjórnendur og/eða foreldrar leitað stuðnings þjónustumiðstöðva en þar starfa þverfagleg teymi sérfræðinga sem sinna málefnum íbúa hverfisins, þ.á.m. nemendum skólanna. Ef enn næst ekki ásættanleg niðurstaða geta foreldar eða skóli leitað til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Þar starfar ráðgjafi foreldra og skóla, Guðbjörg Jónsdóttir, sem vinnur að úrlausn mála í samstarfi við foreldra og stofnanir Reykjavíkurborgar. Til að hafa samband við hana er hringt í síma 411 11 11.

Foreldrar gerenda í eineltismálum
Öllum foreldrum eru það vonbrigði og visst áfall þegar skilaboð berast frá skóla um að barn þeirra taki þátt í einelti. Foreldrar verða engu að síður að hafa hugfast að það gagnast ekki barni þeirra að afsaka hegðun þess, réttlæta eða gera lítið úr henni. Eineltisáætlun Olweusar leggur áherslu á að foreldrar gerenda þurfi að taka sem fyrst á málinu ekki aðeins til að hjálpa þolandanum heldur líka vegna barns síns. Rannsóknir sýna að börn sem sýna ofbeldishegðun gagnvart félögum sínum eru í áhættuhópi hvað varðar andfélagslega hegðun sem getur m.a. leitt til glæpa. Fyrsta skrefið til að hjálpa barninu er að taka upp jákvætt og markvisst samstarf við skólann.

Yfirleitt er ekki mælt með því að foreldrar þolenda hafi sjálfir samband við foreldra gerenda, heldur er lagt til að umsjónarkennari hafi umsjón með því. Hann boðar til fundar með nemendum sem hlut eiga að máli og foreldrum þeirra. Þar útskýrir hann aðstæður og leitar eftir samkomulagi um aðgerðir til að stöðva eineltið. Þessu samkomulagi er fylgt eftir í samstarfi við foreldra.

Frekari upplýsingar má fá á heimasíðu Olweusaráætlunar gegn einelti.