Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Námsflokkar Reykjavíkur hefja sitt sjötugasta starfsár

19.08.2009

Upplestur á frétt 

Námsflokkar Reykjavíkur hefja sitt sjötugasta starfsár á þessu hausti, 2009. Námsflokkarnir eru elsta fullorðinsfræðslustofnun landsins, en þeir voru stofnaðir árið 1939. Námsflokkarnir eru í eigu Reykjavíkurborgar og heyra undir Menntasvið. Hlutverk þeirra er að sinna fullorðinsfræðslu og framfylgja félagslegri menntastefnu borgarinnar.

Námsflokkarnir sinna einkum þeim sem minnsta formlega menntun hafa. Það er gert á margvíslegan hátt m.a. með náms- og starfsráðgjöf, sérkennslu í lestri og skrift, grunnskólanámi fyrir fólk eldra en 16 ára, undirbúningsnámi fyrir framhaldsskóla og ýmsum lengri og styttri fræðsluverkefnum sem flest eru unnin í samstarfi við aðra.

Stefna Námsflokkanna er að vera í sem mestu samstarfi við aðrar stofnanir Reykjavíkurborgar, aðrar menntastofnanir og við nágrannasveitarfélögin. Forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur er Iðunn Antonsdóttir.