Grunnnám
08.09.2009
Upplestur á frétt 
Grunnnám hefst 14. september og stendur skráning enn yfir.
Hægt er að stunda grunnnám í íslensku, stærðfræði og ensku.
Íslenska er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 13 - 15.
Enska er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:15 - 17:15.
Stærðfræði er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum frá 15:00 - 17:00 eða 17:20 - 19:20.
Grunnnámið er öllum opið. Í því er kennt námsefni efstu bekkja grunnskólans.
Náms- og starfsráðgjafar Námsflokkanna kenna námstækni í tengslum við grunnnámið.
Verð:
Eitt fag: 16.000
Tvö fög: 21.000
Þrjú fög: 26.000