Óvissuferð Námskrafts
24.09.2009
Upplestur á frétt 
Nemendur í Námskrafti fóru í óvissuferð 22. september og var lagt af stað með rútu kl. 9. Eftir stutta viðkomu á ylströndinni þar sem farið var í keppni í gerð sandkastala lá leiðin í Bjarkarhúsið í Hafnarfirði þar sem þau fengu að spreyta sig í klifri og sýna hæfni sína á hinum ýmsu fimleikaáhöldum. Óhætt er að segja að þarna hafa komið í ljós ýmsir leyndir hæfileikar og frábærir taktar. Eftir ánægjulegan morgun endaði ferðin með pizzuveislu hjá Námsflokkunum.


