Karlasmiðja fer upp í Kjós
30.09.2009
Upplestur á frétt 

Á haustdögum voru nemendur Karlasmiðju boðnir upp í Kjós í tengslum við námskeiðið "Lesið í skóginn". Á móti þeim tók Ólafur Oddson eða Óli skógur eins og hann er gjarnan kallaður. Eftir vel heppnaða skógarferð og góðar umræður var hellt upp á te og bakað eldbrauð með gómsætri fyllingu.