Þemadagar í Námsflokkunum 17. , 18. og 19. febrúar
08.03.2010
Upplestur á frétt 
Á þemadögunum var gert margt skemmtilegt. Meðal annars komu Dr. Sigmundur Guðbjarnason og Jóhanna Vilhjálmsdóttir og fluttu mjög athyglisverðan fyrirlestur um áhrif mataræðis á heilsuna.
Á miðvikudeginum fóru Kvennasmiðjur og Karlasmiðjur í Miðberg þar sem Marta Eiríksdóttir var með þau m. a. í hláturjóga.
Á fimmtudeginum kom síðan Sigmundur Guðbjarnason og Jóhanna Vilhjálmsdóttir og fjölluðu um matarræðið við mikla ánægju viðstaddra. Síðan fóru konur í jóga og karlar í klifur í líkamsræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði.
Á föstudeginum þá sáu nemendur um heilsusamlegan morgunverð í Mjóddinni. Síðan fóru allir í Kramhúsið og dönsuðu salsa.