Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Námsstyrkjum úthlutað úr Guðrúnarsjóði

24.03.2010

Upplestur á frétt 

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, úthlutaði níu námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði í Höfða í dag. Sjóðurinn var stofnaður með samþykkt borgarráðs 3. mars 2005 í samstarfi við Eflingu - stéttarfélag.

Guðrúnarsjóður er nefndur eftir Guðrúnu Halldórsdóttur, fyrrverandi forstöðumanni Námsflokka Reykjavíkur, og brautryðjanda á sviði fullorðinsfræðslu. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni eða starf félagasamtaka á helstu baráttusviðum Guðrúnar. Þeim má lýsa með þremur einkunnarorðum: jafnrétti, fræðsla og fjölmenning.

Námsstyrkirnir eru að upphæð kr. 74.000 hver og eru veittir fullorðnum einstaklingum sem sýnt hafa dugnað og elju í námi sínu.

Við úthlutun styrkjanna sagði Hanna Birna að Guðrún Halldórsdóttir hefði með starfi sínu stutt og hvatt fjölmarga einstaklinga til náms. „Þessir einstaklingar hafa sigrast á félags- eða heilsufarslegum hindrunum, hafið nám og staðið sig framúrskarandi vel. Það er ánægjulegt að geta með styrk úr sjóðnum lagt þeim enn frekar lið við að ná framtíðarmarkmiðum sínum."

Þessir einstaklingar hljóta styrk árið 2010:

Árni Geir Árnason, Guðbjörg Birgisdóttir, Guðlaug Rún Ragnarsdóttir, Halina Leonsdóttir,

Íris Björk Ingadóttir, Jennifer Getial, Mary Luz Suarez Ortiz, Zija Krrutaj og Þórleif Lúthersdóttir.