Aldarminning Ágústs Sigurðssonar stofnanda Námsflokka Reykjavíkur
23.08.2006
Upplestur á frétt 

29. apríl 2006 var þess minnst að 100 voru liðin frá fæðingu Ágústs Sigurðssonar stofnanda Námsflokka Reykjavíkur. Á fjórða tug síðustu aldar stundaði Ágúst nám við Hafnarháskóla og var fyrstur Íslendinga til að ljúka cand.mag. gráðu í dönsku með ensku sem aukagrein.
Á námsárum sínum kynntist hann starfi námsflokka í Svíþjóð og beitti sér af miklum dugnaði við að koma þeim á fór hér á landi. Fyrir hans tilstilli voru Námsflokkar Reykjavíkur stofnaðir 1939, kvöldskóli fyrir hvern sem vildi læra. Ágúst var skólastjóri Námsflokkanna frá upphafi og til ársins 1970 og rak þá alla tíð af miklum metnaði. Hann var jafnframt kennari við Kennaraskólann, samdi kennslubækur í dönsku og orðabækur og mótaði mjög dönskukennslu í landinu. Á tímum þessa merka frumkvöðuls í íslenskri skólasögu stunduðu vel á annað þúsund manns nám í Námsflokkunum og voru þeir þá fjölmennasti skóli landsins.