Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Sumarskóli - sumarfjör

15.05.2006

Upplestur á frétt 

Í Sumarskólanum fer fram kennsla í íslensku og fræðsla um íslenskt samfélag fyrir börn og fullorðna af erlendum uppruna. Sumarskólinn er víðtækt samvinnuverkefni Námsflokka Reykjvíkur, ÍTR, Vinnuskólans, nýbúafræðslu Menntasviðs og Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða. Skólinn verður með breyttu sniði í sumar því kennsla barna og unglinga verður meira sniðin að leikjum þeirra á leikjanámskeiðum og vinnu þeirra í Vinnuskólanum auk þess sem börnin sækja Sumarskólann í sínu hverfi og eru með íslenskum börnum. Á næstu dögum munu fulltrúar Vinnuskólans, ÍTR og Menntasviðs fara í grunnskóla borgarinnar til að kynna nýtt fyrirkomulag og aðstoða við skráningar.

Bæklingur um Sumarskólann á íslensku (pdf)
Summer school - summer fun - brochure in English (pdf)
Sumarskólinn - bæklingur á pólsku (pdf)
Sumarskólinn - bæklingur á víetnömsku (pdf)

Sumarskólinn - bæklingur á tælensku (pdf)
Sumarskólinn - bæklingur á kínversku (pdf)