Forstöðumaður Námsflokkanna fær Starfsmenntaverðlaunin 2006
27.11.2006
Upplestur á frétt 
Björg Árnadóttir forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur hlýtur starfsmenntaverðlaun fyrir árið 2006. Þau voru veitt af Mennt, samstarfsvettvangi atvinnulífs og skóla og Starfsmenntaráði föstudaginn 24. nóvember. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Björg verðlaunin, en hún fékk þau í svokölluðum opnum flokki, þ.e. til frumkvöðla eða einstakra verkefna á sviði starfsmenntar. Aðrir vinningshafar voru Alcan fyrir uppbyggingu náms við Stóriðjuskólann og Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra fyrir öflugt samstarf við grunnskóla og fyrirtæki við að gera veg iðnnáms sem mestan.
Björg Árnadóttir hefur starfað að fullorðinsfræðslu á Íslandi og í Svíþjóð um 20 ára skeið. Hún kynntist krafti fullorðinsfræðslunnar í Svíþjóð á 9. áratug síðustu aldar þar sem hún vann hjá Norrbottens Bildningsförbund að verkefnum sem miðuðu að því að hjálpa íbúum lítilla byggðalaga nyrst í Svíþjóð að takast á við óvissa framtíð og auka lífsgæði þeirra sem dvöldu langdvölum á sjúkrahúsum. Eftir að heim kom hélt hún áfram að kenna, einkum ritlist og tjáningu á framhaldsskólastigi en einnig mikið á námskeiðum fyrir fullorðna víða um land. Á Akureyri hreifst hún af hugmyndafræði Menntasmiðjunnar þar sem hún kenndi. Hún tók einnig þátt í uppbyggingu Menntasmiðja á Akranesi og í Dalabyggð og kenndi um margra ára skeið í menntasmiðjum víðs vegar um landið.
Frá árinu 1999 hefur Björg starfað að stjórnun og stefnumótun í fullorðinsfræðslu, en þá var hún ráðin fyrsti framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Hún tók einnig virkan þátt í samvinnu símenntunarstöðva á landsbyggðinni og átti þátt í stofnun Kvasis, samtaka þeirra. Síðan tók hún við endurmenntunarstarfi Fjölbrautaskólans við Ármúla og undirbjó stofnun Framvegis-miðstöðvar um símenntun og var framkvæmdastjóri þess fyrirtækis fyrstu árin.
Á vettvangi þessara fræðslufyrirtækja tók hún þátt í þróun fjarnáms og fjarkennslu hér á landi og stjórnaði einnig samstarfsverkefni við félagsvísindadeild H.Í. um kennslu í upplýsingatækni.
Í júní 2005 tók Björg við starfi forstöðumanns Námsflokka Reykjavíkur og hefur stjórnað þeim breytingum sem gerðar hafa verið á starfseminni og eins stefnumótun um félagslega menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Hlutverk Námsflokka Reykjavíkur er að veita þeim sem minnsta formlega menntun hafa námsráðgjöf, grunnmenntun og sérkennslu auk þess að vinna ýmiss verkefni sem felast í að hjálpa fullorðnu fólki til að hefja aftur nám og störf.