Síðustu félagsliðarnir útskrifaðir frá Námsflokkunum
15.12.2006
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 14. des. útskrifaðist hópur fjórtán kvenna úr félagsliðanámi hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Þetta er í síðasta sinn sem Námsflokkarnir útskrifa félagsliða, en alls hafa 126 manns lokið félagsliðanámi frá Námsflokkunum. Menntaðir félagsliðar er hópur sem fer ört stækkandi því rétt um 300 manns hafa lokið þessu námi, sem nú er í boði hjá Borgarholtsskóla og á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar auk nokkurra staða á landsbyggðinni.