Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Verkakonur, einstæðar mæður og ungmenni af erlendum uppruna fá hvatingarstyrki

01.03.2007

Upplestur á frétt 

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri úthlutaði 28. febrúar 10 námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði, en hann var settur á fót á síðasta ári í samstarfi við Eflingu- stéttarfélag í tilefni af sjötugsafmæli Guðrúnar Halldórsdóttur fyrrverandi forstöðukonu Námsflokka Reykjavíkur. Í stjórn sjóðsins sitja Kristín A. Árnadóttir, formaður, Guðrún Halldórsdóttir og Þórunn Sveinbjörnsdóttir.

Með stofnun sjóðsins vildi Reykjavíkurborg þakka það mikla og óeigingjarna hugsjónastarf sem Guðrún hefur lagt af mörkum í þágu borgarinnar og borgarbúa. Árlega er úthlutað úr sjóðnum með jafnrétti, fræðslu og fjölmenningu að leiðarljósi en þau svið lét Guðrún sig mestu varða á langri starfsævi.

Veittir verða 10 námsstyrkir til jafnmargra einstaklinga, hver að upphæð 50.000 kr og í hópi þeirra er hljóta styrkina eru verkakonur, einstæðar mæður og ungmenni af erlendum uppruna. Sumir styrkþega hafa sýnt það þrekvirki að berjast áfram í námi þrátt fyrir lesblindu, aðrir hófu nám þrátt fyrir að vera komnir á miðjan aldur og enn aðrir hafa glímt við nám á tungumáli sem er ekki þeirra fyrsta mál.

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, hefur gengið til samstarfs við Reykjavíkurborg og Eflingu um fjármögnunGuðrúnarsjóðs. SPRON hefur ákveðið að styrkja sjóðinn með einnar milljón króna framlagi. Þá hafa Efling stéttarfélag ogMímir símenntun lagt sjóðnum til 300.000 krónur samtals til úthlutunar á þessu ári.

Styrkþegar árið 2007:

1. Guðrún Rakel Svandísardóttir lýkur námi af hönnunarbraut Iðnskólans í vor. Hún hefur staðið sig vel í námi og sýnt þrautseigju þrátt fyrir lesblindu. Guðrún er einstæð móðir og fór snemma að bera ábyrgð á sjálfri sér og síðar syni sínum. Hún hyggur á framhaldsnám í arkitektúr og er styrkurinn hvatning til hennar um að halda ótrauð áfram á þessari braut.

2. Quan Dao Dong er nú á öðru ári í Iðnskólanum og er í námi á Upplýsinga- og margmiðlunarsviði. Hann er framúrskarandi nemandi en nýtir tíma sinn jafnframt til að styðja við bakið á öðrum víetnömskum nemanda. Quan Dao er þátttakandi í verkefninu Framtíð í nýju landi. Verkefninu er ætlað að aðstoða víetnömsk ungmenni við að afla sér menntunar og skipuleggja líf sitt með þeim hætti að þau verði virk í samfélaginu. Styrkurinn er hvatning til hans um að halda áfram í námi og er jafnframt viðurkenning fyrir stuðning hans við aðra.

3. Helga Dögg Haraldsdóttir stundaði nám í kvennasmiðjunni árið 2006 og lagði alúð við námið. Eftir kvennasmiðjuna fór hún í FB og stóð sig vel þar. Hún stundar nú nám í frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík og stefnir á að ljúka stúdentsprófi á þremur önnum. Helga Dögg er einstæð móðir með tvö börn. Styrknum er ætlað að hvetja Helgu Dögg til að halda áfram í námi og búa sér og börnum sínum góða framtíð.

4. Deborah V. Tanupan er nú í náminu Félagsliði í nýju landi. Hún hefur alltaf sýnt dugnað og vilja til að bæta við sig þekkingu. Jafnframt hefur hún ætíð verið tilbúin til að taka þátt í starfshópum um málefni erlendra starfsmanna þegar til hennar er leitað og miðla með þeim hætti af reynslu sinni. Styrknum er ætlað að hvetja hana til að bæta við sig menntun á því sviði sem hún starfar á. Deborah vinnur á Droplaugarstöðum einum af vinnustöðum Reykjavíkurborgar.

5. Jacqueline Torreon er nú í náminu Félagsliði í nýju landi. Hún vinnur á Droplaugarstöðum, einum af vinnustöðum Reykjavíkurborgar og hefur lagt sig fram við að læra íslensku. Styrknum er ætlað að hvetja Jacqueline til að mennta sig á því sviði sem hún starfar á.

6. Jóhanna Georgsdóttir stundar nám á félagsliðabrú með fullu starfi í Seljahlíð en hún er einnig þriggja barna einstæð móðir. Hún hefur starfað í Seljahlíð, heimili aldrara, frá opnun þess og hefur alltaf sýnt lipurð og stundvísi í starfi. Styrkurinn á að vera hvatning til Jóhönnu til að mennta sig á því sviði sem hún starfar við.

7. Gígja Skúladóttir stundar nú nám á braut grunndeildar rafiðnaðar. Henni gengur vel í náminu, er einstæð móðir og hefur sýnt vilja til framfara í lífi sínu. Styrknum er ætlað að vera Gígju hvatning til að mennta sig.

8. Leónóra Krrutaj sýnir mikinn vilja til að mennta sig í nýju landi og á tungumáli sem er ekki hennar fyrsta mál. Leónóra hefur litla grunnmenntun og sýnir hún mikla þrautseigju í námi. Hún er ákveðin í að ná betri tökum á lestri og er styrkurinn hvatning til hennar um að halda áfram á sömu braut. Guðrún Halldórsdóttir hefur lagt henni lið.

9. Vuong Nu Thi Ðong  hefur sýnt mikinn dugnað í námi og staðið sig vel. Vuong er þátttakandi í verkefninu Framtíð í nýju landi. Vuong er ein af þeim fjölmörgu sem Guðrún Halldórsdóttir hefur stutt við bakið á.

10. Nhung Tuyet Nguyen  var fljót að ná tökum á íslensku máli og stendur sig mjög vel í námi. Hún er áhugasamur nemandi og stundar nú nám í MK í hagnýtu viðskipta- og fjármálagreinanámi. Nhung er þátttakandi í verkefninu Framtíð í nýju landi.