Innritun stendur yfir í grunnnámið
22.08.2007
Upplestur á frétt 

Námsflokkarnir bjóða fólki eldra en 16 ára nám þar sem kennt er námsefni efstu bekkja grunnskóla í ensku, íslensku, dönsku og stærðfræði. Áhersla er lögð á að sníða námið að þörfum hvers og eins. Þannig getur fólk hafið nám hvenær sem er vetrarins, tekið það á þeim hraða sem því hentar og lokið því hvenær sem er. Mikil áhersla er lögð á námstækni. Próf eru í boði, en eru valfrjáls.
Námið er ætlað þeim sem
eru 16-18 ára og hafa ekki lokið grunnskólaprófi ( þessi hópur verður að taka próf)
eru eldri en 18 ára og ekki hafa lokið grunnskólaprófi
vilja rifja upp grunnskólanámið
vilja geta aðstoðað börnin sín betur við heimanámið
Kennsla hefst 10. september. Nánari upplýsingar í síma 567-7050.