Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Námstilboð Námsflokkanna

Starfskraftur

Verkefnið Starfskraftur er ætlað ungu fólki á aldrinum 16 - 19 ára sem hvorki stundar nám né vinnu. Markmiðið er að hjálpa því að finna lífi sínu farveg með starfsþjálfun, sjálfstyrkingu, ráðgjöf og fræðslu um nám og störf.

Verkefnið stendur í 12 vikur.
Fræðsla og ráðgjöf er veitt í húsnæði Námsflokkanna að Suðurlandsbraut 32 (2. hæð).
Starfsþjálfun fer fram á vinnustöðum. Reynt verður eftir megni að finna vinnustaði sem þátttakendur kjósa.

Greitt verður fyrir störf þátttakenda þá 24 daga sem starfsþjálfunin fer fram. Að verkefninu loknu eiga þáttakendur að hafa fengið reynslu af vinnumarkaði sem gæti hjálpað þeim að útvega sér vinnu. Einnig munu þátttakendur hafa fengið góða námsráðgjöf og fræðslu.

Verkefnið er samstarfsverkefni Námsflokka Reykjavíkur og Velferðasviðs Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar veita jodis.karadottir@reykjavik.is og Iðunn Antonsdóttir idunn.antonsdottir@reykjavik.is

Upplýsingar í síma 411-7040 og gsm 664-8606

Fræðslan verður samsett af list- og verkgreinum, sjálfseflingu, námstækni og starfsfræðslu.

Fræðsluhlutinn er 275 kennslustundir og hugsanlegt er að fá það nám metið til eininga á framhaldsskólastigi í samræmi við reglur þess skóla sem nám er stundað við.

Þeir áfangar sem til greina koma eru lífsleiki og hugsanlega valeiningar hverrar brautar.