Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Grunnám

Grunnnám

Námsflokkarnir bjóða fólki eldra en 16 ára upp á nám í námsefni efstu bekkja grunnskóla í ensku, íslensku og stærðfræði. Áhersla er lögð á að sníða námið að þörfum hvers og eins. Þannig getur fólk hafið nám hvenær sem er vetrar, tekið það á þeim hraða sem því hentar og lokið því hvenær sem er. Mikil áhersla er lögð á námstækni. Próf eru í boði, en eru valfrjáls.

Námið er ætlað þeim sem:

  • eru 16-18 ára og hafa ekki lokið grunnskólaprófi (þessi hópur verður að taka próf)
  • eru eldri en 18 ára og ekki hafa lokið grunnskólaprófi
  • vilja rifja upp grunnskólanámið
  • vilja geta aðstoðað börnin sín betur við heimanámið


Enska
er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:15-17:15.
Stærðfræði er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 13:00-15:00 eða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:20-19:20.
Íslenska er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00-15.00.

Kennsla hefst mánudaginn 13. september og byrjar námið á undirbúningsviku fyrir ofan greindar námsgreinar.
Innritunargjald er 5.000 kr.

Verð:
Eitt fag: 16.000 kr. (6 kennslustundir)
Tvö fög: 21.000 kr.
Þrjú fög: 26.000 kr.

Sjá auglýsingu um grunnnámið (pdf).

Náms- og starfsráðgjafar kenna þeim sem stunda grunnnám í námstækni.