Námskraftur
Námsflokkar Reykjavíkur bjóða sérstakt tækifæri til náms í verkefninu Námskraftur. Námskraftur er fyrir ungmenni á aldrinum 17 - 25 ára. Innritun stendur yfir í síma 4117040. Umsjónamenn námsins eru Jódís Káradóttir og Hrönn Ágústsdóttir. Námið hefst 9. janúar. Kennt er frá 8:30 til 12:45. Við kennum stærðfræði, heimspeki/lífsleikni, listnám og fjarnám í ensku og íslensku.