
Skólahljómsveit Grafarvogs
Skólahljómsveit Grafarvogs var stofnuð 1993 og hefur aðsetur í Foldaskóla. Hún þjónar öllum grunnskólum Grafarvogs. Hljómsveitaræfingar fara fram í Foldaskóla, en kennt er í einkatímum í fleiri skólum, háð húsnæði og nemendasamsetningu.
Hljómsveitin skiptist í þrjár aðalsveitir eftir aldri og getu nemenda, auk slagverkssveitar annarra minni hópa. Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla og taka nemendur áfangapróf eða stigspróf. Rekið er kröftugt hljómsveitarstarf með æfingaferðum, landsmóts- og utanlandsferðum. Einnig styður öflugt foreldrastarf við sveitina.
Stjórnandi: Einar Jónsson
Hljómsveitin er með eigin vefsíðu: Skólahljómsveit Grafarvogs
Kynningarbæklingur um skólahljómsveitir í Reykjavík skólaárið 2011-2012