Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hljóðfæraleiga

Hljóðfæraleiga

Í hverri skólahljómsveit er kennt á flest eða öll málm- og tréblásturhljóðfæri auk slagverks. Hægt er að fá lánuð hljóðfæri í einhvern tíma gegn vægu gjaldi en æskilegt er að nemendur eignist með tímanum eigið hljóðfæri. Ekki er víst að allir komist að á óskahljóðfærið sitt, en hafa skal í huga að það er jafn gaman að leika á öll hljóðfæri.
Þegar sótt er um nám í skólahljómsveit merkja foreldrar við ef óskað er eftir því að leigja hljóðfæri fyrir barnið. Skólaárið 2009-2010 er leigugjaldið 5.800 kr.
Sem dæmi um hljóðfæri sem eru til leigu má nefna:
*Trompet
*Kornett
*Básúnu
*Baritón
*Franskt horn
*Es horn
*Túbu
*Þverflautu
*Klarinett
*Saxafón