Fréttir
Síðasti opni fundurinn um nýtt aðalskipulag var haldinn sl. fimmtudag 26. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mæting hefði mátt vera betri en íbúarnir sem mættu voru áhugasamir og tóku virkan þátt á vinnuborðunum um framtíðarskipulag miðborgarinnar. Hafa nú verið haldnir alls 10 fundir í öllum hverfum borgarinnar um nýtt aðalskipulag.
Reykjavíkurborg óskar eftir hugmyndaríkum og duglegum einstaklingum og hópum til að taka þátt í endursköpun almenningssvæða og torga í biðstöðu í borginni í sumar. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2012. Þetta er annað árið sem Reykjavíkurborg fer af stað með biðsvæðaverkefni.
Alls voru 95 íbúðir skráðar sem fullgerðar eða teknar í notkun á árinu 2011 og allar úr steinsteypu, þar af voru 58 íbúðir í fjölbýlishúsum. Í byggingu sl. áramót vou 736 nýjar íbúðir og þar af voru 423 íbúðir fokheldar eða meira.
Skoða allar fréttir