Skipulagsmál

Undir liðnum skipulagsmál er að finna fundargerðir frá embættisafgreiðslum skipulagsfulltrúa, mál í kynningu í þjónustuveri í Borgartúni 12-14 , s.s. breytingar á aðalskipulagi, nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagi og mál sem eru í grenndarkynningu, mál í vinnslu, nýjar og nýlega samþykktar deiliskipulagsáætlanir, yfirlit yfir Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024. Einnig er hér að finna Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, Þróunaráætlun miðborgar og deiliskipulag miðborgar. Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um gerð deiliskipulags fyrir skipulagsráðgjafa og kort um húsvernd í Reykjavík.
Breytingar hjá embætti skipulagsfulltrúa og þar með skipulagsmála hafa orðið í kjölfar samþykktar borgarráðs þ. 29. mars 2007. Í stað skipulagsfulltrúa hefur nú verið stofnað embætti skipulagsstjórans í Reykjavík sem tekið hefur við öllum réttindum og skyldum sem sem talin eru hlutverk skipulagsfulltrúa samkvæmt ákvæðum skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997. Þær meginskipulagsbreytingar hafa orðið í skipulagsmálum á sviðinu er að í stað embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa er nú embættisafgreiðslufundur skipulagsstjóra. Skipulagsstjóri er Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt. Í stað embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa verða nú haldnir embættisafgreiðslufundir skipulagsstjóra. Hvorki form fundarins né tímasetning mun ekki breytast.
Skipting verkefna:
Skipulagsstjóri. Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt.
Deildarstjóri skipulagsmála, þróun byggðar, Vatnsmýri.
Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt.
Umhverfisstjóri - Aðalskipulag. Björn Axelsson, landsslagsarkitekt.
Græn svæði, útivistar- og íþróttasvæði og útmörk borgar.
Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt.
Arkitektar Lilja Grétarsdóttir, arkitekt og Margrét Þormar, arkitekt.
Valný Aðalsteinsdóttir, arkitektanemi.
Sérverkefni. Jóhannes S. Kjarval, arkitekt.
Sérverkefni - Landspítali Háskólasjúkrahús. Margrét Leifsdóttir, arkitekt.
Aðalskipulag og svæðisskipulag. Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur.
Skipulagsmálum er skipt í þrjú svið: Deiliskipulag, Þróun byggðar og Umhverfisskipulag.
Verkefni sem heyra undir Deiliskipulag eru:
- Umsjón með gerð deiliskipulags
- Embættisafgreiðslur í umboði skipulagsstjóra
- Undirbúningur ákvarðanatöku og tillögugerðar til skipulagsráðs
- Framfylgd ákvarðana skipulagsráðs í umboði skipulagsstjóra
- Ráðgjöf á sviði skipulags- og byggingarmála
Skipulagsstjóri, Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt, er yfirmaður Deiliskipulags.
Verkefni sem heyra undir Þróun byggðar eru:
- Endurskoðun og breytingar á svæðisskipulagi
- Endurskoðun og breytinga á aðalskipulagi
- Rannsóknir
- Umhverfismál / mat
- Gagnagrunnsmál / skipulagsmál
- Tengsl við LUKR
- Viðhald kortagrunna
- Skipulagssjá
Verkefnisstjórarnir Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt, og Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur stýra verkefnum Þróun byggðar.
Verkefni Umhverfisskipulags eru:
- Umhverfisþættir
- Græn svæði
- Útivistar og íþróttasvæði
- Útmörk borgar
Verkefnisstjóri, Björn Axelsson, landslagsarkitekt, stýrir verkefnum Umhverfisskipulags