Þjónustuver

Móttaka umsókna
- Móttaka umsókna vegna byggingar- og skipulagsmála
- Ljósritun gagna og önnur þjónusta í afgreiðslu
Móttaka og afgreiðsla fyrirspurna
- Móttaka og afgreiðsla fyrirspurna – Byggingarfulltrúa og Skipulagsstjóra
- Utanumhald um fyrirspurnir sem þurfa afgreiðslu sérfræðinga og eftirfylgni með svörun
Símaþjónusta
Skjalastjórnun
- Ábyrgð á skjölum og uppdráttum
- Umsjón með bókasafni
Þjónustuver Reykjavíkurborgar vill vekja athygli á því að afgreiðsla teikninga og annarra uppdrátta er frá 8:20-16:00 í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Einnig er hægt að panta teikningar með því að senda póst á netfangið thjonustuver@reykjavik.is. Þá pantar viðkomandi afrit af teikningum í gegnum netfangið, fær tilkynningu þegar þau eru tilbúin og sækir síðan og greiðir fyrir afritin í Borgartúni. Háskólanemar og aðrir sem óska eftir að fá að skoða teikningar vegna námsverkefna eða annarra ástæðna eru sérstaklega velkomnir frá 8:20-11:30 á fimmtudögum og föstudögum.
Eftirfarandi skilgreiningar eru hafðar til hliðsjónar við afgreiðslu á afritum teikninga:
Afgreiðsla aðaluppdrátta:
Minni pantanir: Ef beðið er um afrit af átta íbúðarhúsum eða færri eru afritin afgreidd innan tveggja virkra daga í gegnum netfang þjónustuvers, eða samdægurs á staðnum.
Stærri pantanir: Ef beðið er um afrit af átta íbúðarhúsum eða fleiri þá eru afritin afgreidd innan þriggja virkra daga hvort sem fólk kemur á staðinn eða sendir pöntun í gegnum netfang þjónustuvers.
Stór verkefni: Ef beðið er um afrit af mjög miklu magni húsnæðisteikninga, sem dæmi heilu götunum, hverfum eða stórum og flóknum byggingum verður þjónustuverið að meta þann tíma sem það tekur í hverju tilfelli fyrir sig.
Einnig er vakin athygli á því að hver afgreiðsla er jafnan metin fyrir sig, því oft er um stórar og flóknar afgreiðslur að ræða og erfitt að setja tímamörk út frá fjölda. Skilgreiningin hér að ofan miðast við tvo uppdrætti af hverju húsi að meðaltali.
Verkfræðiteikningar
Afgreiðsla afrita af verkfræðiteikningum er skilgreind á annan hátt en afgreiðsla vegna aðaluppdrátta því ekki er hægt að panta afrit af þeim teikningum í gegnum netfang eða síma, heldur þarf viðkomandi að koma á staðinn, skoða teikningarnar og velja úr.
Raflagnateikningar
Raflagnateikningar sem skilað hefur verið inn fyrir áramótin 2007/2008 er að finna á Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Nýrri teikningar er að finna í þjónustuveri, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.