Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Endurskoðun deiliskipulags á Borgartúnsreit norður

11. ágúst 2009

Pdf skjöl

BT-01 Núverandi ástand (PDF)
BT-02 Skipulagsuppdráttur (PDF)
BT-03 Byggingarmagn-kvaðir ofl. (PDF)
BT-04 Deiliskipulagsuppdráttur -ásýndir (PDF)

10. ágúst 2009

Til upplýsingar vegna deiliskipulagsvinnu sem staðið hefur yfir fyrir Borgartúnsreiti norður.

Unnin hefur verið tillaga að endurskoðun á deiliskipulagi fyrir norðurhluta Borgartúns af Hornsteinum arkitektum. Tillagan hefur verið kynnt fyrir hagsmunaaðilum og haldnir hafa verið tveir opnir kynningarfundir vegna þeirrar vinnu.

Í tillögunni felst umtalsverð aukning á byggingarmagni gegn ákveðnum skilyrðum, m.a. að öllum bílastæðum fyrir utan gestastæði verði komið fyrir í bílageymslum neðanjarðar.

Ákveðið hefur verið að fresta auglýsingu á deiliskipulagstillögunni og þar með gildistöku um óákveðinn tíma vegna efnahagsástandsins í þjóðfélaginu.

Hins vegar hefur tillagan verið samþykkt sem drög í skipulagsráði og í borgarráði þann 11. júní síðasliðinn þar sem fram kemur að skipulagsyfirvöldum beri að hafa deiliskipulagstillögu Hornsteina arkitekta að leiðarljósi ef óskir um uppbyggingu á svæðinu kunni að berast.

Kjósi lóðarhafar að fara í uppbyggingu á lóðum sínum umfram heimildir í gildandi deiliskipulagi þarf viðkomandi að óska eftir þeirri breytingu til skipulagsyfirvalda og kosta breytinguna sjálfur.

F.h. skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar

Margrét Leifsdóttir, arkitekt

verkefnisstjóri.

07. nóvember 2008

Hagsmunaaðila kynning framlengd til 20.nóvember.


20.október 2008

Hagsmunaaðilakynning  

Deiliskipulagsuppdráttur, núverandi ástand  (PDF).

Deilliskipulagsuppdráttur, ásýndir (PDF)

Deiliskipulagsuppdráttur skýringaruppdráttur (PDF)

Deiliskipulagsuppdráttur tillaga (PDF)

Unnið hefur verið að deiliskipulagstillögu á vegum Hornsteina arkitekta. Sú tillaga liggur nú fyrir og verður hún í kynningu frá 21. október til 4. nóvember 2008.

25. júní 2008

Þann 23.júní s.l. var haldinn seinni hugmynda- og kynningarfundur á Grand Hotel með hagsmunaaðilum vegna endurskoðunar á deiliskipulagi fyrir Borgartúnsreit norður, sem nú stendur yfir.

Þar voru kynntar hugmyndir að mögulegri útfærslu svæðisins, sem Hornsteinar arkitektar hafa unnið í samráði við Skipulags- og byggingarsvið. Að kynningu lokinni voru líflegar umræður um verkefnið

Hagsmunaaðilar hafa tækifæri til að koma með skriflegar óskir og ábendingar til skipulags- og byggingarsviðs til 30 júlí n.k. og verða þær notaðar sem innlegg í deiliskipulagsvinnuna.

Kynningarefni af seinni fundi er hér fyrir neðan:

Borgartúnið: Bjartasta vonin (PDF)

Fyrirspurnir varðandi málið vinsamlegast sendist á netfangið skipulag@reykjavik.is   

Kynningarefni af fyrsta fundi er hér fyrir neðan:

Powerpoint kynning 13 mb.  

Sama kynning á PDF. 7 mb.