Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skipulagsráð

Skipulagsráð

Borgarstjórn kaus í skipulagsráð 15. júní 2010:

Kjörnir

Til vara:

Páll Hjaltason, formaður

Óttarr Proppé (frá 7.9.'10)

Elsa Hrafnhildur Yeoman

Hólmfríður Jónasdóttir

Hjálmar Sveinsson

Sverrir Bollason

Kristín Soffía Jónsdóttir

Stefán Benediktsson

Júlíus Vífill Ingvarsson

Marta Guðjónsdóttir (frá 19.8.'10)

Gísli Marteinn Baldursson

Hildur Sverrisdóttir

Jórunn Frímannsdóttir (frá 1.7.'10)

 Jón Karl Ólafsson

Áheyrnarfulltrúi VG

 

 Sóley Tómasdóttir

 Torfi Hjartarson

 

Skipulagsráð starfar í umboði borgarráðs. skv.samþykkt fyrir ráðið, samþykktri í borgarstjórn 5. apríl 2005, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, og skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, sbr. 6., 38. og 39. gr. laganna, sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga nr 45/1998.

Skipulagsráð skal móta stefnu í skipulags- og byggingarmálum og taka ákvarðanir og gera tillögur til borgarráðs um skipulags- og byggingarmál á grundvelli skipulags- og byggingarlaga. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með að stefnumörkun og samþykktum sé fylgt. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður.

Verkefni skipulagsráðs eru m.a. að vera borgarráði og öðrum borgaryfirvöldum til ráðuneytis á sviði skipulags- og byggingarmála, þ.m.t. vegna umhverfismatsáætlana. Ráðið hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála, gerir tillögur til borgarráðs um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim, þ.m.t. varðandi skipulag umferðar.
Þá fjallar ráðið ásamt byggingarfulltrúa um umsóknir um byggingarleyfi, ályktar um úrlausn þeirra til borgarráðs og afgreiðir framkvæmdaleyfi.
Jafnframt veitir ráðið menningar- og ferðamálaráði umsagnir um mál er varða húsafriðun skv. ákvæðum laga um húsafriðun nr. 104/2001.
Ráðið gerir tillögur til borgarráðs um fjárveitingar úr húsverndarsjóði og veitir ár hvert viðurkenningu aðilum sem skarað hafa fram úr, hvað varðar metnaðarfulla byggingarlist.

Skipulagsráð afgreiðir, án staðfestingar borgarráðs, eftirtalin verkefni á grundvelli skipulags- og byggingarlaga samkvæmt heimild í 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007:
a. Óverulegar breytingar á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.
b. Ákvörðun um að hefja gerð deiliskipulags.
c. Framkvæmdaleyfi, sbr. 1. mgr. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga.
d. Skiptingu jarða, landa og lóða og breytingar á landamerkjum, sbr. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Skipulagsráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt skv. 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi skipulagsráðs með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.
Aðsetur skipulagsráðs er að Borgartúni 3, en verður að Borgartúni 10-12, og heldur ráðið að jafnaði fundi alla miðvikudaga kl. 9.00. Fella má niður fundi í alls tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið getur haldið fundi opna almenningi.


Viðtöl hjá nefndarmönnum eru bókuð í Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411-1000, eða á netfangi viðkomandi aðila. Skipulagsráð fundar einu sinni í viku að jafnaði, Borgartúni 12-14. Fundargerðir ráðsins er hægt að nálgast hér.