Gjöld og leyfi
Spurning: Gjaldskrár?
Sjá hér
Spurning: Hvað er skipulagsgjald?
Svar: Greiða skal skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati í eitt sinn af hverri nýbyggingu sem reist er. Nýbygging telst hvert nýreist hús sem virt er til brunabóta, svo og viðbyggingar við eldri hús ef virðingarverð hinnar nýju viðbyggingar nemur a.m.k. 1/5 verðs eldra hússins. Skipulagsgjald af mannvirkjum, sem ekki eru virt til brunabóta, skal nema 0,3% af stofnverði þeirra. Ekki skal greitt skipulagsgjald af þeim mannvirkjum sem ekki eru háð byggingarleyfi nema stofnkerfum rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta utan þéttbýlis. Með stofnkerfi er í reglugerð þessari átt við flutningskerfi, frá upptökum að dreifikerfi. Með þéttbýli er samkvæmt reglugerð þessari átt við þyrpingu húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fari að jafnaði ekki yfir 200 metra. Nánar vísast í reglugerð um skipulagsgjald sem finna má hér.
Spurning: Bílastæðagjöld?
Svar: Bílastæðagjald greiðist fyrir þann fjölda bílastæða sem á skortir til að uppfylltar séu kröfur um fjölda bílastæða samkvæmt 64. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998, deiliskipulag og reglum þeim sem Reykjavíkurborg hefur sett sér um bílastæði. Gjaldið er mismunandi eftir gjaldflokkum. Sjá nánar í gjaldskrá hér, reglur um bílastæði - hluti þeirra er enn í gildi (PDF).
Spurning: Þarf að sækja um og teikna þetta eða hitt?
Svar: Það er stundum álitamál, en best er að gefa símann á afgreiðslu byggingarfulltrúa, þar ætti að vera hægt að fá svar við því hvenær þarf að sækja um og hvenær ekki. Þumalputtareglan er þó sú að sækja þarf um allar útlitsbreytingar á húsum. Sú umsókn heitir umsókn um byggingarleyfi. Einnig er ágætt að benda borgarbúum á að hægt er að leggja inn fyrirspurn til byggingarfulltrúa. Það kostar ekkert en málið hlýtur meðferð eins og um venjulega umsókn væri að ræða. Hægt er að prenta út fyrirspurnareyðublað hér eða fylla út á netinu og senda rafrænt ( http://byggingarleyfi.skyrr.is/fyrirspurn.asp ).
Spurning: Einhver er að framkvæma. Hefur hann byggingaleyfi?
Svar: Hringja í Skiplags- og byggingarsvið, sími 411 1111 og biðja um afgreiðslu byggingarfulltrúa þar sem þarf að skoða teikningar á íbúðinni til að svara því. Afgreiðslan svarar síma frá 8:20-16:15 alla virka daga.
Spurning: Þarf leyfi fyrir fánastöng inná lóð?
Svar: Ef að fánastöngin er inná lóð þá þarf ekki leyfi hjá byggingafulltrúanum.
Spurning: Þarf leyfi fyrir gervihnattadisk?
Svar: Það þarf að sækja um leyfi til að setja upp gervihnattadisk. Slík umsókn kallast umsókn um byggingarleyfi og vísast í þjónustulýsingar á því, opna pdf-skjal hér.
Spurning: Listi yfir leyfishafa til að gera eignaskiptasamninga?
Svar: Listi yfir leyfishafa til að gera eignaskiptasamninga er á netinu:
(http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/leyfishafar/nr/895 ). Félagsmálaráðuneytið gefur einstaklingum starfsleyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.