Lóðir og fasteignir
Spurning: Hver á ákveðna lóð?
Svar: Fasteignamat Ríkisins gefur slíkar upplýsingar (www.fmr.is ), sími: 515-5300.
Spurning: Hver á ákveðna fasteign?
Svar: Fasteignamat Ríkisins gefur slíkar upplýsingar (www.fmr.is ), sími: 515-5300
Spurning: Er íbúð samþykkt?
Svar: Senda þarf tölvupóst á netfangið byggingarfulltrui@reykjavik.is til að fá úr því skorið hvort íbúð er samþykkt eður ei.
Spurning: Hvað má gera/byggja á lóðum?
Svar: Það sést á deiliskipulagi. Hringja í Skiplags- og byggingarsvið, sími 411 1111 og biðja um arkitekt hjá embætti skipulagsstjóra. Arkitektarnir eru fulltrúar skipulagsstjóra og sjá um skipulagningu á hverfunum. Einnig er gott að senda inn fyrirspurn í gegnum netið (skipulag@rvk.is ) eða með bréfi (Skipulags- og byggingarsvið, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.) þar sem málið er útskýrt.
Spurning: Hvað má ég byggja og hvernig?
Svar: Ef að það er til deiliskipulag fyrir hverfið þá sést það á deiliskipulaginu. Í sumum eldri hverfum Reykjavíkur eru ekki til deiliskipulag. Best er að benda fólki á að senda inn fyrirspurn til skipulagsfulltrúa, þar sem málið verði skoðað af arkitket. Hægt er að nálgast eyðublöð í afgreiðslu skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 12-14, 105 Rvk. Einnig er hægt að prenta út eyðublöð af netinu, eða senda bréf í tölvupósti (skipulag@rvk.is ) eða pósti (Skipulags- og byggingarsvið, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík).
Spurning: Byggingarréttur á lóð?
Svar: Sést á deiliskipulagi. Hægt er að nálgast deiliskipulag hjá Skipulags- og byggingarsviði, Borgartúni 12-14, Þjónustuveri fyrstu hæð, opið frá kl. 08:00-16:15 alla virka daga.
Spurning: Hver á bílastæði?
Svar: Ef bílastæði er merkt inn á mæliblað húseignar er það í eigu þess aðila og þeir mega sérmerkja eins og þeir vilja. Ef aftur á móti stæði er utan lóðar er það í eigu borgarinnar og allir mega leggja þar. Við fjölbýlishús eru sömu reglur, kemur fram á mæliblaði hvar lóðarmörk eru og hversu mörg bílastæði tilheyra húsinu. Ef deilur eru milli húseigenda og/eða annarra (t.d næstu hús) hver má leggja hvar og svoleiðis eru það innanhússmál þeirra sjálfra. Borgin skiptir sér ekki af því. Íbúar mega sérmerkja stæði við fjölbýlishús en það verða allir íbúar að samþykkja það.
Spurning: Hvað er nýtingarhlutfall og hvernig er það reiknað út?
Svar: Nýtingarhlutfall er hlutfallið milli stærðar lóðar, eða einhvers ákveðins landsvæðis, og heildarflatarmáls allra gólfflata á lóðinni, eða á hinu tilgreinda landsvæði. Leyfilegt nýtingarhlutfall á lóð sést á deiliskipulagi sem hægt er að nálgast hjá Skipulags- og byggingarsviði að Borgartúni 12-14 og er opið alla virka daga 08.20:00-16:15.
Svalalokanir og nýtingarhlutfall. Sjá hér (PDF). Dæmi um útreikninga nýtingarhlutfalls á lóð: Ef lóð er 1000 fermetrar (m2) og á því stendur tveggja hæða hús, þar sem gólf beggja hæða, mælt útfyrir útveggi (heildarflatarmál) er 500m2 , verður nýtingarhlutfall (N): 500/1000 = 0,5. Ef húsið er 4 hæðir og samanlögð gólf hússins eru 1000 m2 verður nýtingahlutfallið, (N) ; 1000/1000 = 1.0.
Spurning: Granni leggur bílnum sínum alltaf fyrir framan húsið hér. Er hægt að merkja sér bílastæði?
Svar: Já, ef það er séreign, annars ekki. Ef bílastæði er merkt á mæliblaði (sem fæst hjá mælingardeild) innan lóðar húseignar er það í eigu þess aðila og þeir mega sérmerkja eins og þeir vilja. Ef aftur á móti stæði er utan lóðar er það í eigu borgarinnar og allir mega leggja þar. Við fjölbýlishús eru sömu reglur, kemur fram á mæliblaði hvar lóðarmörk eru og hversu mörg bílastæði tilheyra húsinu. Ef deilur eru milli húseigenda og/eða annarra (t.d næstu hús) hver má leggja hvar og svoleiðis eru það innanhússmál þeirra sjálfra. Borgin skiptir sér ekki af því. Íbúar mega sérmerkja stæði við fjölbýlishús en það verða allir íbúar að samþykkja það.
Spurning: Tré á lóðamörkum, skyggir á útsýni, tré nágrannans teygir sig yfir á mína lóð, hvað má ég gera?
Svar: Samkvæmt 68. grein í byggingarreglugerð, sjá reglugerðina hér. Lóðarhöfum skylt að halda vexti trjágróðurs innan lóðarmarka. Til er bæklingur um trjágróður á lóðum og er hægt að nálgast hann í Þjónustuveri Borgartúni 10-12.
Spurning: Girðing og skjólveggir?
Svar: Samkvæmt 67. grein byggingarreglugerð, sjá reglugerðina hér.
Spurning: Þarf leyfi fyrir fánastöng inná lóð?
Svar: Ef að fánastöngin er inná lóð þá þarf ekki leyfi hjá byggingafulltrúanum.
Spurning: Þarf leyfi fyrir gervihnattadisk?
Svar: Það þarf að sækja um leyfi til að setja upp gervihnattadisk. Slík umsókn kallast umsókn um byggingarleyfi og vísast í þjónustulýsingar á því, opna pdf-skjal hér.
Spurning: Hvar koma verslanir, skóli, grunnskóli, leiksvæði o.sv.frv. í nýjum hverfum?
Svar: Það sést á deiliskipulagi hvar þessa þjónustu verður að finna í nýjum og nýlegum hverfum. Hægt er að skoða flestar samþykktar skipulagsáætlanir frá 2002 og nýrri á vefnum, sjá hér. Ef ekkert finnst þar er best að fara í Þjónustuver Borgartúni 12-14 og biðja um starfsmann sviðsins til að fá að skoða deiliskipulagsuppdrætti. Skipulags- og byggingarsvið er til húsa í Borgartúni 10-12, 2.hæð . Einnig er hægt að biðja um að fá að ræða við arkitekt hjá embætti skipulagsstjóra.