Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Teikningar og kort

Spurning: Hvar fær ég teikningar af húsinu mínu?
Svar: Byggingarfulltrúinn í Reykjavík varðveitir allar teikningar nema raflagnateikninga af íbúðum í Reykjavík og Kjalarnesi, m.a grunnmynd af íbúð og húsum, lagnateikningar, burðarþol, afstöðumynd. Skrifstofa byggingarfulltrúa er til húsa í Borgartúni 12-14, 2. hæð en allar fyrirspurnir og teikninga afhendingar fara í gegnum Þjónustuver á 1. hæð.. Afgreiðslutími 8.20-16:15 alla virka daga en teikninga afhending er opin frá 8.20 til 16.00.  Raflagnateikningar má nálgast í Borgarskjalasafni, Tryggvagötu 15.


Spurning: Þarf að sækja um og teikna þetta eða hitt?
Svar: Það er stundum álitamál, en best er að gefa símann á afgreiðslu byggingarfulltrúa, þar ætti að vera hægt að fá svar við því hvenær þarf að sækja um og hvenær ekki. Þumalputtareglan er þó sú að sækja þarf um allar útlitsbreytingar á húsum. Sú umsókn heitir umsókn um byggingarleyfi. Einnig er ágætt að benda borgarbúum á að hægt er að leggja inn fyrirspurn til byggingarfulltrúa. Það kostar ekkert en málið hlýtur meðferð eins og um venjulega umsókn væri að ræða. Hægt er að prenta út fyrirspurnareyðublað hér eða fylla út á netinu og senda rafrænt ( http://byggingarleyfi.skyrr.is/fyrirspurn.asp ).


Spurning: Teikningar af húsum á rafrænuformi eða faxa?
Svar: Það er ekki í boði. Teikningarnar eru á það stórum uppdráttum að ekki er hægt að senda þá í faxi og skrifstofa byggingarfulltrúa er ekki kominn það langt í rafræna ferlinu að hafa teikningar af byggingum á rafrænum formi, en það er á áætlun ( Áætlað að verði aðgengilegt að hluta til strax í byrjun árs 2010). Það þarf að fara í afgreiðslu Þjónustuvers til að fá teikningar af húsi/íbúð, afgreiðsla er opin í Þjónustuveri Borgartúni 12-14 alla virka daga 08.20-16:15 en teikninga afhending er opin frá 8.20 til 16.00.


Spurning: Er búið að stimpla teikningar?
Svar: Hringja í Skipulag- og byggingarsvið, sími 411 1111 og biðja um afgreiðslu byggingarfulltrúa þar sem þarf að skoða teikningar á íbúðinni til að svara því. Afgreiðslan svarar síma frá 8:20-16:15 alla virka daga, en afgreiðslan sjálf er í Þjónustuveri Borgartúni 12-14.


Spurning: Lögreglan er búinn að loka staðnum (veitinga-) það vantar eitthvað hjá byggingarfulltrúa, teikningar og svoleiðis. Hvað nú? 
Svar: Hringja í Skiplags- og byggingarsvið, sími 411 1111 og biðja um úttektarmann. Þeir sjá um veitingaleyfi fyrir embætti byggingarfulltrúa.


Spurning: Hvar fæ ég kort af borginni?
Svar: Mælingadeild, Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar (Borgartúni 12-14, s. 411 1111) selur götukort í veggstærð A1. Kort í vasabroti liggja víða frammi á borgarstofnunum, einnig má kaupa "ferðamannakort" í bókaverslunum en þau eru ekki útgefin af borginni. Hægt er að kaupa sérkort hjá Landupplýsingadeild eftir óskum (Borgartúni 12-14, s. 411 1111). Á netinu er svokölluð Borgarvefsjá opin öllum sem hafa netaðgang. Þar má skoða kort af borginni, loftmyndir og margt fleira. Mælingadeild hefur einnig séð um útgáfu grunnkorta.


Spurning: Gömlu Hverfakort Borgarskipulags?
Svar: Hverfakortin voru gefin út á árunum 1988-1999, alls 8 kort sem gegndu bæði því hlutverki að vera upplýsingamiðill um viðkomandi hverfi og fyrirhugaðar framkvæmdir ásamt því að veita aðhald um umbætur. Sem upplýsingamiðill þá var fjallað um sögu og einkenni byggðar, sett fram markmið um áframhaldandi uppbyggingu og greint frá hvar framkvæmdir væru á döfinni. Sem aðhald um umbætur þá var kannað hvar útbóta væri þörf og gerðar tillögur um endurbætur. lHverfakortin voru umfangsmikil vinna sem hafði það að markmiði að: Fræða íbúana um hverfið þeirra og nánast umhverfi, og hvernig mætti gera hverfið fallegra og umferðina öruggari. Við vinnuna var lögð áhersla á tengsl íbúa við Borgarskipulagið og auka tengsl milli íbúa Reykjavíkur og borgaryfirvalda. Hverfakortin voru nokkurs konar skipulagsáætlun sem var tengiliður milli aðal- og deiliskipulags. Á hverfakortum var fjallað um flesta þætti skipulags, t.d. húsnæði, umferð og umhverfi. Með því að vinna hverfakortin í stærri kvarða en í aðalskipulagi þá var hægt að sýna skipulag einstakra svæða mun betur og markmið um útfærslu byggðar voru leiðbeinandi fyrir deiliskipulag í byggðum hverfum.

Borgarhluti 1 (PDF)   Miðbærinn, Gamla höfnin, Gamli Vesturbærinn og Gamli Austurbærinn
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 2 (PDF)   Melar, Hagar, Skjól, Eiðsgrandi, Skildinganes, Háskólahverfi og Flugvallarsvæðið
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 3 (PDF)   Tún, Holt, Norðurmýri, Hlíðar og Suðurhlíðar
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 4 (PDF)   Laugarnes, Lækir, Kleppsholt, Laugarás, Sund, Heimar og Vogar
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 5 (PDF)   Múlar, Háaleiti, Hvassaleiti, Kringla, Smáíbúðahverfi, Bústaðahverfi, Fossvogur og Blésugróf
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 6 (PDF)   Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt og Seljahverfi
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 7 (PDF)   Árbær, Ártúnsholt, Selás og Bæjarháls
Umhverfiskort (PDF)

Borgarhluti 8 (PDF)   Foldir, Hamrar, Hús og Ártúnshöfði
Umhverfiskort (PDF)