Afgreiðslu- og kynningarferli
Spurning: Afgreiðsla frá fundi í gær – hvernig fór málið?
Svar: Fundargerðirnar birtast á netinu,www.skipbygg.is um leið og þær eru tilbúnar, sjá hér. Um þrenns konar fundi getur verið um að ræða: Fundur skipulagsráðs sem er haldinn alla miðvikudaga, embættisafgreiðslufund skipulagsfulltrúa sem er alla föstudaga og embættisafgreiðslufund byggingarfulltrúa sem er alla þriðjudaga. Einnig er hægt að hringja í Skipulags- og byggingarsvið, sími 411 1111 og fá að vita um afgreiðslu málsins. Svarað er frá 8:20-16:15 alla virka daga.
Spurning: Hvað tekur langan tíma að breyta deiliskipulagi?
Svar: Minnst 2 mánuði ef allt gengur að óskum. Þegar uppdrættir eru komnir inn til skipulagsfulltrúa tekur Skipulagsráð / skipulagsstjóri ákvörðun um að auglýsa erindið og vísar því svo í borgarráð sem samþykkir að það megi auglýsa málið. Að því loknu er auglýst í öllum blöðum og Lögbirtingablaðinu og er auglýsingatími (athugasemdarfrestur) 6 vikur. Að því loknu þarf, ef athugasemdir berast, að fara yfir þær, tekur mislangan tíma eftir umfangi athugasemda, og þá fer málið yfirleitt aftur til umfjöllunar hjá Skipulagsstjóra. Síðan er erindið sent til Skipulagsstofnunar og þegar þeir eru búnir að yfirfara og samþykkja afgreiðslu málsins er það sent til auglýsingar/staðfestingar í B-deild Stjórnartíðinda. Þegar erindið hefur birst þar er því endanlega lokið.
Spurning: Hvernig fer grenndarkynning til nágranna fram?
Svar: Mál berst til skipulagsfulltrúa frá eigendum/verktökum eða frá byggingarfulltrúa og tekin er ákvörðun um grenndarkynningu. Grenndarkynning stendur yfir í 4 vikur. Grenndarkynning er send til nágranna á aðliggjandi lóðum og á móti ef útlitsbreyting er talin hafa áhrif hjá þeim. Ef aðilar eru er reynt að senda öllum aðilum uppdrátt með bréfi þannig að fólk þurfi ekki að fara í upplýsingarskálann og kynna sér málið en yfirleitt er sent bréf til hagsmunaaðila með helstu upplýsingum og bent á að kynna sér málið í upplýsingaskála, þar sem málið er hengt upp til kynningar eða á netinu, sjá mál í kynningu hér. Grenndarkynning er kynning á t.d breytingu á útliti húss, kvistir, svalir og þannig hlutir (umsókn berst til byggingarfulltrúa og hann sendir erindið til skipulagsstjóra), eins eru smávægilegar breytingar á deiliskipulagi oft grenndarkynntar. Ákvörðun er tekin á fundi skipulagsfulltrúa, það er ekki hægt að svara því í gegnum síma í hvaða tilfellum þarf að grenndarkynna og hvenær ekki.
Spurning: Er búið að samþykkja deiliskipulagið?
Svar: Hringja í Skiplag- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um skjalavörð eða ritara skipulagsstjóra.
Spurning: Athugasemdir við mál sem fór fyrir fund byggingarfulltrúa, hverjar eru þær?
Svar: Athugasemdir eru sendar í pósti daginn eftir að fundur er haldinn. Ef gefið er upp netfang með umsókn til byggingarfulltrúa eru athugasemdirnar sendar með tölvupósti um leið og afgreiðslufundi lýkur. Líka er hægt að biðja skiptiborð, sími 411 1111, að gefa símann yfir á skrifstofu byggingarfulltrúa og biðja um að athugasemdirnar séu lesnar upp í gegnum símann eða þær faxaðar til viðkomandi. Afgreiðsla byggingafulltrúa svarar símanum frá 8:20-16:15 en afgreiðslan sjálf er opin frá 08.20: - 16:15.
Spurning: Er búið að stimpla teikningar?
Svar: Hringja í Skipulags- og byggingarsvið, sími 411 1111 og biðja um afgreiðslu byggingarfulltrúa þar sem þarf að skoða teikningar á íbúðinni til að svara því. Afgreiðslan svarar síma frá 8:20-16:15 alla virka daga, en afgreiðslan sjálf er í Þjónustuveri 1.hæð og er opin frá 08:20-16:15.
Spurning: Forkynning?
Svar: Embætti skipulagsstjóra sér um forkynningar á deiliskipulagi. Hún er send út til hagsmunaaðila á ákveðnum reit þegar á að fara að hefja deiliskipulagsvinnu en ekkert komið á blað ennþá. Stendur yfir í 2 vikur og beðið er um ábendingar (skriflegar) frá aðilum sem fá bréf. Þetta er gert til að leyfa íbúunum í hverfinu að taka þátt og hafa áhrif á skipulag þeirra hverfis, enda þekkja íbúarnir hverfið sitt manna best. Hafa samband við Skipulag- og byggingarsvið, sími 411 3000. Sviðið er til húsa að Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík.
Spurning: Hagsmunaaðilakynning?
Svar: Embætti skipulagsstjóra sér um slíkar kynningar. Hún er næsta skref á eftir forkynningu í skipulagsferlinu. Hagsmunaaðilar fá aftur bréf (líkt og í forkynningu) og kynning stendur í 2 vikur. Kynningin er til sýnis í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs og á netinu, sjá mál í kynningu hér. Þá eru komin drög af deiliskipulagi á blað og aftur beðið um skriflegar ábendingar og athugasemdir.
Spurning: Hvernig þú sendir inn athugasemdir á rafrænu formi?
Svar: Leyfilegt er að senda inn athugasemdir við deiliskipulagstillögu, hagsmunaaðilakynningu og grenndarkynningu á rafrænu formi. Athugasemdabréfið er sent á netfangið skipulag@rvk.is - það er móttekið á skrifstofu skipulagsstjóra.