Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Reglugerðir og eignaskiptayfirlýsingar

Spurning: Hvar fæst byggingarreglugerðin?
Svar: Hægt er að kaupa byggingarreglugerðina hjá Skipulagsstofnun (www.skipulag.is ), Laugavegi 166, s: 595-4100. Einnig er hægt að nálgast byggingarreglugerðina á netinu, sjá reglugerðina hér.


Spurning: Túlkun úr byggingarreglugerðinni.
Svar: Hringja í skiptiborð skiplags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um tæknimann (úttektarmann) sem getur svarað slíkum spurningum. Einnig er hægt að senda tölvupóst með fyrirspurn á (byggingarfulltrui@rvk.is ).


Spurning: Ég þarf að láta yfirfara eignaskiptasamning, hvar er það gert?
Svar: Til þess að hægt sé að þinglýsa eignaskipasamningi, þá þarf að láta yfirfara hann hjá byggingafulltrúa Reykjavíkur, ef þeir eru án athugasemda tekur það u.þ.b. 2 vikur. Skila þarf inn 4 eintökum, eitt er geymt hjá byggingafulltrúa, annað sent Fasteignamati Ríkisins og tvö afhent viðkomandi eftir yfirferð. Þá þarf að fara með þessi tvö eintök til Sýslumannsins í Reykjavík til þinglýsingar og þá öðlast samningurinn gildi.


Spurning: Hverjir gera eignaskiptayfirlýsingar?
Svar: Mikið er spurt um hverjir gera eignaskiptayfirlýsingar. Það eru einkaaðilar sem hafa fengið leyfi frá félagsmálaráðuneytinu til að gera eignaskiptayfirlýsingar.


Spurning: Listi yfir leyfishafa til að gera eignaskiptasamninga?
Svar: Listi yfir leyfishafa til að gera eignaskiptasamninga er á netinu: (http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/leyfishafar/nr/895 ).
Félagsmálaráðuneytið gefur einstaklingum starfsleyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.


Spurning: Er eignaskiptasamningur tilbúinn?
Svar: Hringja í skiptiborð skipulags- og byggingarsviðs, sími 411 1111, sem getur svarað til um hvernig staðan er á samningnum en biðja um upplýsingafulltrúa ef mikið að gera hjá skiptiborðinu. Skiptiborð, sími 411 1111, er opið frá 8:20-16:15.


Spurning: Hvar fæ ég afrit af eignaskiptasamning?
Svar: Afrit af eignaskiptasamning, sé hann á annað borð til og þinglýstur, fæst hjá Sýslumanninum.