Húsvernd og friðun
Spurning: Er húsið mitt friðað?
Svar: Hús getur verið friðað óháð byggingarári en öll hús eldri en 1850 eru friðuð og kirkjur eldri en 1918. Húsafriðunarnefnd heldur utan um upplýsingar um friðuð hús, sími 570 1300, www.hfrn.is.
Spurning: Húsverndunarsjóður Reykjavíkur?
Svar: Húsverndarsjóður Reykjavíkur úthlutar einu sinni á ári styrkjum til eigenda eða húsfélaga húsa.Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum, s.s. girðingum í Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl mannvirkis og sjónarmið minjavörslu.Reglur sjóðsins, er hægt að skoða hér. Það geta allir sótt um styrk en einungis á umsóknartíma sem er einu sinni á ári. Samkvæmt reglum sjóðsins á að auglýsa eftir umsóknum um styrk í sjóðinn fyrir 15. janúar ár hvert. Á umsóknartíma liggja frammi til afhendingar umsóknareyðublöð á skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs, á Árbæjarsafni og á netinu, sjá neðst á síðunni hér. Þeim skal skila innan tilskilins frests, sem er tilgreindur á umsókneyðublaði, til skrifstofu skipulags og byggingarsviðs, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
Spurning: Hvort þú getir sótt um styk í húsverndarsjóð?
Svar: Það geta allir sótt um styrk en einungis á umsóknartíma sem er einu sinni á ári. Samkvæmt reglum sjóðsins á að auglýsa eftir umsóknum um styrk í sjóðinn fyrir 15. janúar. Á umsóknartíma liggja frammi til afhendingar umsóknareyðublöð á skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs, á Árbæjarsafni. Þeim skal skila innan tilskilins frests, sem er tilgreindur á umsókneyðublaði, til skrifstofu skipulags og byggingarsviðs, Borgartúni 3, 105 Reykjavík. Skoða reglur sjóðsins, hægt að skoða hér.
Spurning: Hvar finn ég þemaheftið um húsvernd, sem fylgdi með aðalskipulaginu 1996-2016?
Svar: Þú finnur það hér. Aðalskipulag Reykjavíkur 1996-2016 var staðfest þann 18. ágúst 1997. Í því kvað við nýjan tón í málefnum húsverndar. Gerðar voru skrár yfir byggingar og svæði með varðveislugildi, sem lágu til grundvallar við alla ákvarðanatöku varðandi hið byggða umhverfi. Þemahefti um húsvernd var/er grunnur húsverndarstefnu Reykjavíkurborgar og nánari skilgreiningu á markmiðum skipulagsins sem lúta að verndun og friðun húsa. Samkvæmt þágildandi lögum um byggingar- og skipulagsmál bar að gera húsakannanir áður en unnið var deiliskipulag. Þemaheftið var/er hugsað til upplýsingar og leiðbeiningar fyrir borgarana og borgaryfirvöld, einkum þá sem fjalla um skipulags- og byggingarmál, og til þess að veita aðhald við umfjöllun í nefndum og ráðum.