Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Byggingartengdar spurningar

Spurning: Hvað má ég byggja og hvernig?
Svar: Ef að það er til deiliskipulag fyrir hverfið þá sést það á deiliskipulaginu. Í sumum eldri hverfum Reykjavíkur eru ekki til deiliskipulag. Best er að benda fólki á að senda inn fyrirspurn til skipulagsstjóra, þar sem málið verði skoðað af arkitekt hjá emæbttinu. Hægt er að nálgast eyðublöð í þjónustuveri borgarinnar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Einnig er hægt að prenta út eyðublöð af netinu, sjá hér eða senda bréf í tölvupósti (skipbygg@rvk.is ) eða pósti (Skipulags- og byggingarsvið, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.).


Spurning: Hvað má gera/byggja á lóðum?
Svar: Það sést á deiliskipulagi. Hringja í skiptiborð skipulags- og byggingarsviðs, sími 411 3000 og biðja um arktitekt hjá embætti skipualgsstjóra. Arkitektarnir eru fulltrúar embættis skipulagsstjóra og sjá um skipulagningu á hverfunum. Einnig er gott að senda inn fyrirspurn í gegnum netið (skipbygg@rvk.is ) eða með bréfi (Skipulags- og byggingarsvið, Borgartúni 12-14, 105 Rvk.) þar sem málið er útskýrt.


Svalalokanir og nýtingarhlutfall. Sjá hér (PDF).


Spurning: Byggingarstig húsa?
Svar: Staðlaráð Íslands (www.stadlar.is ) gefur út staðla fyrir byggingarstig húsa. Þar er hægt að sjá t.d. hvenær bygging telst fokheld.- Fá leyfi fyrir heitum potti?
- Stærðin á íbúðinni minni er vitlaust skráð.
- Skráningartöflur
- Gatnagerðargjöld og viðbótar gatnagerðargjöld
- Íbúðarskoðun, fá íbúð samþykkta
- Úttektir, lokaúttektir
- Breyta iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði
- Þarf leyfi til að setja upp skilti, frístandandi eða á húsi?
- Garðhús eða verkfæraskúr inná lóð, þarf leyfi?
- Vínveitingaleyfi, útiveitingaleyfi
- Sólpallar


Spurning: Hver getur orðið byggingarstjóri á verki og hvert er hlutverk byggingarstjóra
Svar: a) Byggingarstjóri. - Byggingarstjóri er framkvæmdastjóri byggingarframkvæmda og ræður alla iðnmeistara í upphafi verks og skráir hjá byggingarfulltrúa. Hann skal hafa tryggingu í gildi í samræmi við byggingarreglugerð. Víki byggingarsjóri fyrir öðrum áður en verki lýkur skal gera úttekt um stöðu verks og ábirgð nýs byggingarstjóra takmarkast við verkþætti sem unnið er að eftir að hann hefur störf. Byggingarstjóra ber ábyrgð gagnvart byggjanda og byggingaryfirvöldum á að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti lög og reglugerðir.
b) Hver tekur að sér byggingarstjórn?  Byggingarstjórar geta verið: 1. Húsasmíðameistarar, múrarameistarar, pípulagnameistarar, vélvirkjameistarar, rafvirkjameistarar og byggingariðnfræðingar, sem hlotið hafa viðurkenningu samkvæmt skipulags og byggingarlögum og tilskilið starfsleyfi. 2. Arkitektar, byggingarverkfræðingar, byggingartæknifræðingar, byggingarfræðingar og aðrir verkfræðingar með hliðstæða menntun á byggingarsviði. 3. Fyrirstæki og stofnanir þar sem aðili starfar sem uppfyllir skilyrði í 1. og 2. tölulið, enda annist hann störf byggingarstjóra.
c) Iðnmeistari - Iðnmeistarar sem hlotið hafa löggildingu umhverfisráðherra eða staðbundna viðurkenningu geta tekið að sér verkþætti og borið ábyrgð á þeim gagnvart byggingaryfirvöldum og byggjanda. Víki iðnmeistari fyrir öðrum áður en verki lýkur skal gera úttekt um stöðu verks og ábirgð nýs iðnmeistara takmarkast við verkþætti sem unnið er að eftir að hann hefur störf.
d) Einn byggingarstjóri, einn iðnmeistari Byggingarstjóri er eins og sjá má af þeim ákvæðum byggingarlaga og reglugerðar sem hér er vísað til ein á hverju byggingarleyfi og hann ræður samkvæmt orðanna hljóðan einn iðnmeistara til starfa í hverri iðngrein.
e) Viðvera byggingarstjóra við úttektir Byggingarstjóra er skylt að vera viðstaddur úttekt og byggingarfulltrúi getur krafist þess að hlutaðeigandi iðnmeistari sé viðstaddur.


Spurning: Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að bygging teljist fokheld?
Svar: Það sést á ÍST 51:2001, sem er íslenskur staðall gefinn út af Staðlaráði Íslands (www.stadlar.is). En hér eru þau skilyrði sem bygging þarf að uppfylla til að teljast fokheld og í leiðinni byggingarstig 1-4:

4.1 Byggingarstig 1 - Byggingarleyfi
4.1.1 Byggingarstig 1 markar upphaf að byggingarsögu mannvirkis. Því telst vera náð þegar þeim verkum er lokið sem talin eru upp í gr.
4.1.2. Í opinberri skráningu er dagsetning miðuð við samþykkt viðkomandi byggingarnefndar.
4.1.2 Aðaluppdrættir hafa verið gerðir fyrir tiltekið hús eða viðbyggingu húss. Samþykki sveitarstjórnar fyrir framkvæmdum liggur fyrir og aðaluppdrættir hafa verið stimplaðir og áritaðir því til staðfestingar. Byggingarstjóri og iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína með áritun hjá byggingarfulltrúa. Séruppdrættir hönnuðar aðaluppdrátta, burðarvirkishönnuða og hönnuða tæknibúnaðar upp að fokheldisstigi liggja fyrir samræmdir og áritaðir hjá byggingarfulltrúa.
4.1.3 Allar notaeiningar í byggingu og byggingin sjálf teljast samþykktar á sama tíma.
4.2 Byggingarstig 2 - Undirstöður
4.2.1 Byggingarstig 2 lýsir því að framkvæmdir séu hafnar við bygginguna. Byggingarstiginu telst vera náð þegar þeim framkvæmdum er lokið sem lýst er í gr.
4.2.2. Í opinberri skráningu er dagsetning miðuð við síðustu úttekt byggingarfulltrúa á undirstöðum.
4.2.2 Undirstöður burðarvirkis skulu fullgerðar og þær frágengnar með einangrun. Fyllt skal inn í sökkla og að þeim og lagnir frágengnar. Botnplata skal vera komin ef hún er berandi hluti af undirstöðum. Í opinberri skráningu er dagsetning miðuð við síðustu úttekt byggingar-fulltrúa.
4.3 Byggingarstig 3 - Burðarvirki fullreist
4.3.1 Byggingarstig 3 lýsir því að burðarvirki notaeiningar hafi verið reist. Því telst vera náð þegar þeim framkvæmdum er lokið sem lýst er í fyrri byggingarstigum og í gr.
4.3.2 - 4.3.6. Í opinberri skráningu er dagsetning miðuð við þakúttekt eða hliðstæða úttekt byggingarfulltrúa.
4.3.2 Botnplata skal vera komin og burðarvirki að fullu reist og frágengið í samræmi við burðarvirkisuppdrætti.
4.3.3 Loftplata og milligólf skulu vera komin og frágengin í samræmi við burðarvirkisuppdrætti. Ef um er að ræða notaeiningu á efstu hæð í byggingu skal lið
4.3.4 jafnframt lokið.
4.3.4 Þakvirki skal vera reist og frágengið í samræmi við burðarvirkisuppdrætti.
4.3.5 Steyptir stigar innanhúss skulu vera komnir.
4.3.6 Stoðveggir, útitröppur, stigar og sorptunnuskýli sem tengjast húsi skulu vera komin.
4.4 Byggingarstig 4 - Fokheld bygging
4.4.1 Byggingarstig 4 lýsir PVI ástandi að byggingu hafi verið lokað fyrir veðri og vindum. Byggingarstiginu telst náð þegar þeim framkvæmdum er lokið sem lýst er í fyrri byggingarstigum og í gr.
4.4.2 - 4.4.11. Dagsetning í opinberri skráningu miðast við fokheldisúttekt byggingarfulltrúa. Ef fokheldisúttekt er ekki gerð má miða við þá dagsetningu þegar fyrst er unnt að staðfesta með skoðun að byggingin uppfylli þær kröfur sem hér eru gerðar.
4.4.2 Allir aðrir séruppdrættir en þeir sem um getur í gr.
4.1.2 auk leiðréttra aðaluppdrátta, hafi komið til breytinga við framkvæmd, skulu liggja fyrir samræmdir og áritaðir hjá byggingarfulltrúa.
4.4.3 Útveggir byggingar skulu reistir og frágengnir sem hér segir: Staðsteyptir veggir. Mótatengi skulu fjarlægð og götum eftir þau lokað. Steyptir einingaveggir. Samskeyti eininga skulu vera fullfrágengin og þétt.Hlaðnir veggir. Samskeyti skulu vera fullfrágengin. Grindarveggir, veggir timbur- og málmgrindarhúsa Útfletir veggjagrinda skulu klæddir með endanlegri klæðningu. Timburklæðning skal hafa fengið fyrstu yfirborðsmeðferð.
4.4.4 Brunaheldir skilveggir milli notaeininga skulu hafa verið reistir og gengið frá hljóðeinangrun og klæðningu sé um hana að ræða. Hið sama gildir um skilveggi innbyggðra bílgeymslna.
4.4.5 Ísteyptir gluggar skulu vera komnir. Gluggum og/eða gluggaopum skal öllum lokað fyrir veðri með plastdúk eða sambærilegu eða vandaðra efni.
4.4.6 Útidyrum og dyrum að sameign skal lokað með bráðabirgðahurðum.
4.4.7 Allar innsteyptar pípur fyrir raf- og boðlagnir skulu komnar, svo og innsteyptir töflukassar. Þakvirki að meðtöldum kvistum skal lokað af að utan með endanlegri klæðningu, þó án rennu og niðurfalla. Útloftunartúður skulu vera fullfrágengnar í þakfleti. Þar sem þakklæðning lokar aðgangi að þakrými skal þakeinangrun, rakavörn, lagnir og loftræsting fullgerð og frágengin. Brunahólfun í þakrýmum og í þökum milli notaeininga skal fullfrágengin. Hið sama gildir um brunahólfun innbyggðra bílgeymslna. Botnar skrið- og lagnarýma skulu frágengnir í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar. Lóð skal grófjöfnuð í því sem næst 25 cm hæð undir endanlegt yfirborð. Björgunarsvæði skulu vera undirbyggð. Umframbyggingarefni og rusl skal fjarlægt úr byggingu og af lóð. Fráveitu- , regn- og þerrilagnir hússins skulu tengdar aðallögnum í götu. Lagnir vegna lóðar fylgja byggingarstigi 5.


Spurning: Hver er byggingarstjóri eða meistari á þessu húsi?
Svar: Hringja í skiptiborð skiplags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um afgreiðslu byggingarfulltrúa sem getur svarað spurningunn. Svarað í síma frá 8:20-16:15 í afgreiðslu alla virka daga milli kl. 8:20-16:15 en afgreiðslan sjálf er opin frá 08:20-16:15 alla daga.


Spurning: Öll hugsanleg tæknimál varðandi húsbyggingu þar sem byggjandi efast um lausnir byggingarstjóra og hönnuða?
Svar: Hringja í skiptiborð skiplags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um yfirverkfræðing hjá byggingarfulltrúa. Einnig er hægt að gefa símann á afgreiðslu byggingarfulltrúa, en þar er svarað í síma frá 8:20-16:15 en afgreiðslan sjálf er opin 10:00-16:15.


Spurning: Lögreglan er búinn að loka staðnum (veitinga-) það vantar eitthvað hjá byggingarfulltrúa, teikningar og svoleiðis. Hvað nú?
Svar: Hringja í skiptiborð skipulags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um úttektarmann. Þeir sjá um veitingaleyfi fyrir embætti byggingarfulltrúa. Þeir eru með símatíma alla virka daga 8:30-9:30 og 11-12.


Spurning: Fokheldiðsvottorð?
Svar: Hringja í skiptiborð skipulags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um afgreiðslu byggingarfulltrúa sem útbýr fokheldisvottorð. Afgreiðslan svarar í síma alla virka daga frá 8:20-16:15 en móttakan sjálf er opin kl. 10:00-16:15.


Spurning: Ný byggingarsvæði í Reykjavík? Hvar eru þau?
Svar: Hringja í skiptiborð skipulags- og byggingarsviðs, sími 411 1111 og biðja um skjalavörð eða ritara hjá embætti skipulagsstjóra.


Spurning: Netfang skráningardeildar byggingarfulltrúa?
Svar: Til að auka skilvirkni skráningardeildar er bent á netfangið skranbygg@rvk.is varðandi ýmis mál. Sem dæmi um erindi þá er hægt að senda skráningartöflur, beiðnir um gerð fastanúmera, fyrirspurnir um fasteignaskráningu o.þ.h. inn á ofangreint netfang. Allir starfsmenn skráningardeildar hafa aðgang að netfanginu. Þeir sem vinna að gerð skráningartaflna er bent á að nota útgáfu 4.01b sem er að finna á www.fmr.is undir þjónusta og skráningartafla.